Home > Æskulýðsstarf

Æskulýðsstarf

Hér í Hjallakirkju fer fram líflegt og skemmtilegt barna- og unglingastarf og mikill fjöldi barna og unglinga kemur í kirkjuna í hverri viku til að skemmta sér saman og eiga góðar stundir. Starfið fer fram í fjórum aldursskiptum hópum og miðast dagskráin við aldur þátttakenda. Það er alltaf líf og fjör á fundum hér í Hjallakirkju og fer það saman við hin góða boðskap Jesús Krists sem kirkjan boðar í öllu sínu starfi.

Yfirskrift vetrarins er 24/7 sem minnir okkur á stöðuga elsku Guðs gagnvart okkur mönnunum, alla daga, allan sólarhringinn.  Í æskulýðsstarfinu hér í Hjallakirkju reynum við að skapa vettvang fyrir heilbrigt og gott félagstarf sem hefur gott forvarnargildi og miðlar hinum sístæða boðskap um Jesús Krist, frelsara mannanna. Æskulýðsstarfið miðar einnig að því að styrkja heilbrigða sjálfsmynd þeirra barna og unglinga sem taka þátt í starfinu og það viljum við svo sannarlega gera hér í Hjallakirkju því að í augum Guðs erum við öll sannarlega mikilvæg og sérstök og höfum eitthvað fram að færa.  Við erum öll kölluð til að miðla kærleika Guðs.

Verið velkomin í barna- og æskulýðsstarfið í Hjallakirkju.
Ekkert kostar að taka þátt í starfi kirkjunnar!