Home > Æskulýðsstarf > Æskulýðsfélag

Æskulýðsfélag

Æskulýðsfélag fyrir 8. bekk
Æskuýðsstarfið í Hjallakrikju er metnaðarfullt og skemmtilegt starf. Á fundum förum við í ýmis konar leiki og leikjaafbögur. Við spilum gömul spil og ný, keppum og vinnum saman. Við tölum og syngjum en lærum einnig að meta þögnina, kynnumst bæninni og hlustum saman á hugleiðingar. Í vetur munum við einnig fá leynigesti, fara í heimsóknir, ferðalög og gera ýmislegt sem bæði verður skemmtilegt og krefjandi. Æskulýðsfélagið er eitthvað sem allir unglingar ættu kíkja á! Jónína Sif og Sólveig Ragna hafa umsjón með starfinu ásamt Heiðu Hrönn og Lárusi Óskari. Fundir eru á fimmtudögum kl. 20-21:30 í Hjallakirkju. Sjá nánar á www.hjalla.net. Æskulýðsfélagið er einnig á Facebook.

Æskulýðsfélag fyrir 9. og 10. bekk
Æskulýðsfélagið MeMe Senior, er fyrir unglinga sem hafa áhuga á að taka þátt í skemmtilegu æskulýðsstarfi. Starfið hverju sinni tekur mið af hópnum sem hittst í kirkjunni, en reynt er að gera eitthvað við allra hæfi. Við tökum okkur margt fyrir hendur, líkt og í yngar æskulýðsfélaginu en eldri krakkarnir eiga þó kost á fleiri ferðalögum. Í vetur munum við fá gesti, fara í heimsóknir, ferðalög, spila, syngja, tala, biðja, læra og leika. Fundirnir eru á þriðjudögum kl. 20-21:30 í Digraneskirkju. Sjá nánar á www.hjalla.net. Æskulýðsfélagið er einnig á Facebook.

Æskulýðsfélag fyrir framhaldsskólanema
Hópur framhaldsskólanema hittist af og til í kirkjunni.  Misjafnt er á hvaða tíma hópurinn hittist.  Nánari upplýsingar er að finna á www.hjalla.net.

Æskulýðsleiðtogar í Hjalla- og Digraneskirkju