Home > Æskulýðsstarf > Kirkjuprakkarar
Kirkjuprakkarar
Kirkjuprakkarar eru fyrir börn á aldrinum 6-8 ára. Fundir eru hvern fimmtudag kl. 16-17.
Ýmislegt er gert á fundum kirkjuprakkara. Á hverjum fundi er helgistund þar sem við syngjum saman, börnin heyra biblíusögu og fræðast um Jesú á margvíslegan hátt. Eftir helgistundina er dagskrá þar sem farið er í ýmsa leiki, spilað, föndrað, dansað, farið í skotbolta og svo mætti lengi telja.
Starfið er í umsjá grunnskólakennaranna Petru Eiríksdóttur og Erlu Björgu Káradóttur. Einnig taka þátt í starfinu ungleiðtogar úr unglingastarfi kirkjunnar.
Fyrsti fundur kirkjuprakkara vorið 2012 verður fimmtudaginn 12. janúar.
