Fermingarstarf
Fermingarfræðslan í Hjallakirkju hefst í ágústmánuði ár hvert. Þá er boðið upp á ágústnámskeið fyrir fermingarbörn sem það kjósa, að þessu sinni fer það fram dagana 15.-18. ágúst 2011. Með því ljúka fermingarbörn helming fræðslunnar en mæta svo einu sinni í mánuði í fræðslutíma yfir vetrartímann. Að auki er þátttaka í helgihaldi kirkjunnar hluti af fræðslunni. Þau börn sem ekki vilja né hafa tök á að taka þátt í umræddu námskeiði í ágústmánuði munu hefja fræðsluna í september og vinna upp það sem ágústhóparnir unnu. Síðan mun sá hópur sameinast hinum í október. Enginn munur er á vinnu fermingarbarnanna, hvort sem þau taka þátt í ágústnámskeiðinu eða hefja fræðslu í september.
Nánari upplýsingar um námskeiðið veturinn 2011-2012 er að finna á heimasíðunni undir Fermingarstarf / Fermingarfræðsla 2011-2012. Fundur með foreldrum og fermingarbörnum um fermingarstörfin næsta haust verður haldinn miðvikudaginn 4. maí 2011 kl. 18 þar sem rætt verður almennt um fermingarstörfin. Hægt er að skrá sig í fræðsluna hér á netinu undir Fermingarstarf /
Skráning.
