Fermingarfræðsla 2011-2012
Upplýsingar til fermingarbarna og foreldra
Boðið er upp á námskeið fyrir fermingarbörnin í lok ágústmánaðar 2011, dagana 15. til 18. ágúst, alls fjóra virka daga. Að auki mæta börnin einu sinni í mánuði um vetrartímann, tvo tíma í senn. Ágústnámskeiðið fer fram fyrir og eftir hádegi og verður hópnum skipt upp sem hér segir:
Fermingarbörn úr Álfhólsskóla mæta kl. 9-12.
Fermingarbörn úr Snælandsskóla mæta kl. 13-16.
Þau börn sem ekki vilja né hafa tök á að taka þátt í umræddu námskeiði í ágústmánuði munu hefja fræðsluna í september og vinna upp það sem ágústhóparnir unnu. Síðan mun sá hópur sameinast hinum í október. Upplýsingar þar um verða tilkynntar bréflega. Nánari fræðsluáætlun um námskeiðið er hér annars staðar á síðunni.
Kynningarfundur með foreldrum og fermingarbörnum um fermingarstörfin næsta haust var haldinn miðvikudaginn 4. maí 2011 kl. 18 þar sem rætt var almennt um fermingarstörfin. Hægt er að skrá sig í fræðsluna hér á netinu undir Fermingarstarf / Skráning.
Fræðsluferð fermingarbarna í Vatnaskóg:
Öllum fermingarbörnum stendur til boða að taka þátt í námskeiði í Vatnaskógi dagana 8.-9. september 2011. Nánari upplýsingar um námskeiðið er annars staðar á síðunni. Hlutur hvers fermingarbarns í kostnaði þess er kr. 5.000.-
Fermingarnámskeiðsgjald ákvarðast af gjaldskrá kirkjumálaráðuneytisins og er nú kr. 9.300.- Gjaldið verður innheimt á næsta vetri. Þá þarf einnig að innheimta leigu fyrir fermingarkyrtil, sem er áætluð kr. 1.000.-
Fræðslugögn: Nýja testamentið, sem Gídeonfélagið gefur öllum 10 ára börnum á Íslandi, eða Biblían, útg. 2007, og fermingarkver sem er til sölu í Hjallakirkju á kr. 2.500. Fermingarbörn geta keypt bókina þegar þau mæta á fermingarnámskeiðið. Athugið að ekki er tekið við greiðslukortum.
Messumætingar: Gert er ráð fyrir að hvert fermingarbarn mæti í 10 guðsþjónustur frá upphafi fermingarstarfs til loka. Það á að hafa fermingarkverið með sér og fylla út kirkjusóknarblað í bókinni. Foreldrar eða aðrir fullorðnir eru beðnir að mæta með fermingarbörnum í guðsþjónustur. Einnig er hægt að fá mætingarstimpil með því að mæta í Æskulýðsfélag Hjallakirkju, í barnaguðsþjónustur eða á bænastundir.
Við minnum á fundi Æskulýðsfélags Hjallakirkju á fimmtudögum kl. 20-21.30. Þar fer fram skemmtilegt og uppbyggilegt starf fyrir unglinga í 8. bekk.
Fermingar vorið 2012:
25. mars kl. 10.30 og 13.30
1. apríl kl. 10.30 og 13.30 (Pálmasunnudagur)
