Álfaheiði 17 | 200 Kópavogur
Sími 554 6716 | hjallakirkja@hjallakirkja.is
Vaktsími presta í Kópavogi: 843-0444
Prestar Kópavogs hafa tekið upp samstarf um vaktsíma utan venjulegs skrifstofutíma. Vaktsíminn er símanúmer sem hægt er að hringja í vegna aðkallandi málefna sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.
Opnunartími í Hjallakirkju er á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum kl. 10-16 og á föstudögum kl. 11-14.
Viðtalstími presta er þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 11-12.
Messur eða guðsþjónustur eru hvern sunnudag kl. 11 og sunnudagaskólinn kl. 13
Bænastundir eru hvern þriðjudag kl. 18
Kóræfingar eru á þriðjudögum kl. 20
Kirkjuprakkarar, 6-8 ára starf, er á fimmtudögum kl. 16 í Hjallakirkju og á þriðjudögum kl. 16 í Snælandsskóla, stofu D1
Ævintýraklúbbur fyrir 9-12 ára er á mánudögum kl. 16
Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 8. bekk er á fimmtudögum kl. 20
Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 9. og 10. bekk er í Digraneskirkju á þriðjudögum kl. 19.30
Fjölskyldumorgnar eru á miðvikudögum kl. 10-12
12 spora hópar eru á miðvikudögum kl. 20, fyrsti fundur er 22. september
AA-fundir eru hvern þriðjudag kl. 19.30
Fjölskyldumorgnar hefja aftur göngu sína nú í haust, hvern miðvikudag kl. 10-12. Allir foreldrar ungra barna eru velkomnir. Boðið upp á ávexti á hverri samveru. Annan eða þriðja hvern fjölskyldumorgun fáum við heimsókn frá aðilum með fræðslu eða kynningu á ýmsum efnum er tengjast börnum og barnauppeldi. Þarna gefst gott tækifæri til kynnast öðrum og eiga góðar stundir í vinalegu umhverfi. Fyrsta samveran verður miðvikudaginn 1. september n.k.
