HJALLAKIRKJA

Álfaheiði 17 | 200 Kópavogur
Sími 554 6716 | hjallakirkja@hjallakirkja.is

Á döfinni

Vaktsími presta í Kópavogi: 843-0444

Prestar Kópavogs hafa tekið upp samstarf um vaktsíma utan venjulegs skrifstofutíma. Vaktsíminn er símanúmer sem hægt er að hringja í vegna aðkallandi málefna sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.

 

Opnunartími í Hjallakirkju er á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum kl. 10-16 og á föstudögum kl. 11-14.

 

Viðtalstími presta er þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 11-12.

 

Messur eða guðsþjónustur eru hvern sunnudag kl. 11 og sunnudagaskólinn kl. 13

 

Bænastundir eru hvern þriðjudag kl. 18

 

Kóræfingar eru á þriðjudögum kl. 20

 

Kirkjuprakkarar, 6-8 ára starf, er á fimmtudögum kl. 16 í Hjallakirkju og á þriðjudögum kl. 16 í Snælandsskóla, stofu D1

 

Ævintýraklúbbur fyrir 9-12 ára er á mánudögum kl. 16

 

Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 8. bekk er á fimmtudögum kl. 20

 

Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 9. og 10. bekk er í Digraneskirkju á þriðjudögum kl. 19.30

 

Fjölskyldumorgnar eru á miðvikudögum kl. 10-12

 

12 spora hópar eru á miðvikudögum kl. 20, fyrsti fundur er 22. september

 

AA-fundir eru hvern þriðjudag kl. 19.30

 

 

Tólf spora námskeið

UPPLÝSINGAR

 

12 sporin - andlegt ferðalag

Sem fyrr verður boðið upp á Tólf spora hópastarf í kirkjunni í vetur. Hér er um að ræða áhrifaríka og góða leið til að bæta sjálfan sig og samskipti við aðra. Sporin tólf sem margir þekkja úr AA-starfinu eru notuð á þessu andlega ferðalagi sjálfskoðunar og endurhæfingar. Þetta námskeið er hins vegar ekki bundið því að fólk þekki sporin, þangað eru allir velkomnir hver sem bakgrunnur þeirra er.

Farið verður yfir kynningarefnið á fjórum fundum sem verða  kl. 20 á miðvikudögum og verður fyrsti fundur þann 22. september. Á þessum fyrstu fundum er kynnt hvernig hvernig unnið er í Tólf sporunum eftir bókinni Tólf sporin – Andlegt ferðalag, og gefst fólki kostur á að átta sig á hvort þessi vinna hentar því og hvort það vilji vera með á ferðalaginu. Á fjórða fundi er ákvörðun tekin og eftir það verður hópunum lokað. Unnið er í litlum hópum. Efnið er lesið heima, spurningum svarað og síðan deilir hópurinn með sér niðurstöðunum. Lögð er áhersla á nafnleynd og trúnað. Enginn þarf að skilgreina sig fyrirfram, þ.e. enginn þarf að hafa nein skilgreind vandamál, fíkn eða slíkt heldur aðeins að langa til að auka lífsgæði sín á félagslega og tilfinningalega sviðinu.
Til frekari glöggvunar er hægt að kíkja á nánara lesefni á lesefnið Algengt hegðunarmynstur hér til hliðar. Þá minnum við á heimasíðu tólf spora námskeiðanna: www.viniribata.is.

Vertu velkomin(n) á sporafund ... fyrsti kynningarfundurinn er 22. september.


Prestar og starfsfólk:

Sóknarprestur:

Íris Kristjánsdóttir
Sími 891-6716
Netfang:
iris (hjá) hjallakirkja.is

Prestur:

Sigfús Kristjánsson
Sími 864-2640
Netfang:
sigfus (hjá) hjallakirkja.is

Organisti:

Jón Ólafur Sigurðsson
Sími 899-8965
Netfang:
jon (hjá) hjallakirkja.is

Kirkjuvörður:

Inga Hrönn Pétursdóttir
Sími 867-0007
Netfang:
inga (hjá) hjallakirkja.is

Æskulýðsfulltrúi:

Þráinn Haraldsson
Sími 866-0112
Netfang:
thrainn (hjá) hjallakirkja.is

Fela þetta