Álfaheiði 17 | 200 Kópavogur
Sími 554 6716 | hjallakirkja@hjallakirkja.is
Vaktsími presta í Kópavogi: 843-0444
Prestar Kópavogs hafa tekið upp samstarf um vaktsíma utan venjulegs skrifstofutíma. Vaktsíminn er símanúmer sem hægt er að hringja í vegna aðkallandi málefna sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.
Opnunartími í Hjallakirkju er á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum kl. 10-16 og á föstudögum kl. 11-14.
Viðtalstími presta er þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 11-12.
Messur eða guðsþjónustur eru hvern sunnudag kl. 11 og sunnudagaskólinn kl. 13
Bænastundir eru hvern þriðjudag kl. 18
Kóræfingar eru á þriðjudögum kl. 20
Kirkjuprakkarar, 6-8 ára starf, er á fimmtudögum kl. 16 í Hjallakirkju og á þriðjudögum kl. 16 í Snælandsskóla, stofu D1
Ævintýraklúbbur fyrir 9-12 ára er á mánudögum kl. 16
Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 8. bekk er á fimmtudögum kl. 20
Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 9. og 10. bekk er í Digraneskirkju á þriðjudögum kl. 19.30
Fjölskyldumorgnar eru á miðvikudögum kl. 10-12
12 spora hópar eru á miðvikudögum kl. 20, fyrsti fundur er 22. september
AA-fundir eru hvern þriðjudag kl. 19.30
Næsta sunnudag 5. september verður fyrsti sunnudagaskóli vetrarins. Allir krakkar eru sérstaklega velkomnir. Það verður sungið, spjallað og hlustað á biblíusögu. Sunnudagaskólinn verður eins og alltaf kl 13. Messan verður svo auðvitað á sínum stað kl. 11 Nánar (+)
Þá er barna- og æskulýðsstarfið að fara í gang í kirkjunni og allir krakkar ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Yfirskrift vetrarins er 24/7 sem minnir okkur á stöðuga elsku Guðs gagnvart okkur mönnunum, alla daga, allan sólarhringinn. Starfið fer fram undir stjórn æskulýðsfulltrúa og allir leiðtogar Hjallakirkju hafa tekið þátt í leiðtoganámskeiðum til að auka færni sína í starfi. Nánar (+)
Nú hafa öll fermingarbörn í Hjallasókn fengið úthlutaðan fermingardag á næsta ári, öll fengu það sem þau völdu í fyrsta sæti. Fermingarlistana má sjá hér á heimasíðunni undir Fermingarstarf, fermingar 2011. Nánar (+)
Messa verður kl. 11 þann 29. ágúst. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar og félagar úr kór kirkjunnar leiða safnaðarsöng. Organisti er Jón Ólafur Sigurðsson. Í prédikun verður tekið fyrir tvöfalda kærleiksboðorð Krists: Elska skaltu Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni, öllum mætti þínum og öllum huga þínum og náunga þinn eins og sjálfan þig. Nánar (+)
Sunnudaginn 22.08 verður hefðbundin guðsþjónusta í Hjallakirkju. Við bjóðum fermngarbörn vetrarins og fjölskyldur þeirra sérstaklega velkomin. Sigfús Kristjánsson þjónar og Jón Ólafur Sigurðsson leikur á Orgel og leiðir söng og messusvör. Nánar (+)
Fermingarfræðsla veturinn 2010-2011 í Hjallakirkju hefst með námskeiði dagana 16.-19. ágúst n.k. Að auki munu fermingarbörnin mæta einu sinni í mánuði í fræðslutíma í vetur og fá stimpla fyrir mætingar í helgihald og annað starf kirkjunnar. Ágústnámskeiðið fer fram fyrir og eftir hádegi og verður hópnum skipt upp sem hér segir: Fermingarbörn úr Hjalla- og Digranesskóla (Álfhólsskóla) mæti kl. 9-12, fermingarbörn úr Snælandsskóla mæti kl. 13-16. Nánar (+)
Í sumar verða messur eða guðsþjónustur hvern sunnudag í Hjallakirkju kl. 11. Hvern þriðjudag er svo bænastund í kirkjunni kl. 18. Opnunartími kirkjunnar er á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum kl. 10-14 og viðtalstími presta kl. 11-12 þessa sömu daga. Þess má geta að nú sem fyrri ár er samstarf milli kirkna í Kópavogi um helgihaldið og í sumar verður messað í öllum kirkjum bæjarins alla sunnudaga. Nánar (+)
Sunnudaginn 30. maí verður messa í kirkjunni kl. 11. Þessi dagur í kirkjuárinu er nefndur Þrenningarhátíð. Guðspjallstexti dagsins er úr Jóhannesarguðspjalli og fjallar um heimsókn Nikódemusar til Jesú um nótt (sjá Jóh. 3.1-15). Félagar úr kór kirkjunnar syngja og leiða safnaðarsöng, og organisti er Jón Ólafur Sigurðsson. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar við messuna. Nánar (+)
Á hvítasunnudag mun Hjallasöfnuður heimsækja nágranna sína í Digranessöfnuði. Messa verður í Digraneskirkju kl. 11, sr. Magnús B. Björnsson og sr. Íris Kristjánsdóttir þjóna við messuna. Kór Digraneskirkju leiðir safnaðarsöng og organisti er Kjartan Sigurjónsson. Veitingar verða í safnaðarsal kirkjunnar að messu lokinni. Nánar (+)
Þriðjudaginn 18. maí kl. 20 verða vortónleikar Kórs Hjallakirkju. Efnisskráin að þessu sinni samanstendur af veraldlegum lögum. Boðið er upp á kórsöng, kammerkór, karlakvartett, einsöng og tvísöng. Píanóleikari er Julian Isaacs og Halldór Másson leikur á gítar. Söngstjóri er Jón Ólafur Sigurðsson. Aðgangseyrir er kr. 1.500 Nánar (+)
Næsta sunnudag verður hefðbundin Guðsþjónusta í Hjallakirkju kl 11. Guðspjall dagsins segir frá því þegar Jesús undirbýr lærisveina sína undir það verkefni sem býður þeirra og komu heilags anda. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson, prestur Sigfús Kristjánsson og félagar úr kór kirkjunnar leiða söng og sálmasvör Nánar (+)
Á Uppstigningardag, 13. maí, verður guðsþjónusta í Hjallakirkju kl. 14. Guðsþjónustan er á vegum Hjalla- og Digranessafnaða sem sameina krafta sína þennan dag. Dagurinn hefur um nokkurt skeið verið helgaður öldruðum og af því tilefni munu Söngvinir, kór aldraðra í Kópavogi, syngja undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur. Prestar safnaðanna þjóna. Þráinn Haraldsson, æskulýðsfulltrúi í Hjallakirkju, prédikar og brúar þar með bil kynslóðanna. Organisti er Jón Ólafur Sigurðsson. Að guðsþjónustu lokinni er boðið upp á kaffiveitingar í safnaðarsal kirkjunnar. Nánar (+)
Sunnudagurinn 9. maí er 5. sunnudagur eftir páska. Þá verður messa í kirkjunni kl. 11. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar og félagar úr kór kirkjunnar leiða safnaðarsönginn undir stjórn Jóns Ólafs, organista. Guðspjallstexti dagsins er úr 16. kafla Jóhannesarguðspjalls þar sem segir meðal annars: „Sannlega, sannlega segi ég yður: Hvað sem þér biðjið föðurinn um í mínu nafni mun hann veita yður. Hingað til hafið þér einskis beðið í mínu nafni. Biðjið og þér munuð öðlast svo að fögnuður yðar verði fullkominn." Nánar (+)
Fundur með foreldrum og fermingarbörnum um fermingarstörfin í Hjallakirkju næsta haust verður haldinn miðvikudaginn 5. maí 2010 kl. 18. Þar verður rætt almennt um fermingarstörfin og fyrirkomulag fræðsunnar sem hefst í ágúst. Í kjölfarið verður hægt að skrá sig í fræðsluna, bæði í lok fundarins sem og hér á netinu. Allir eru velkomnir á fundinn. Nánar (+)
Næsta sunnudag 2. maí kemur Þorvaldur Halldórsson í heimsókn. Hann leiðir á sinn hátt bæði söng og messusvör. Sigfús Kristjánsson þjónar. Við minnum á að nú er Sunnudagaskólinn kominn í sumarfrí og hlökkum til að sjá ykkur aftur í haust. Nánar (+)
Sunnudaginn 25. apríl verða kórtónleikar á vegum Kammerkórs Hjallakirkju kl. 17. Kórinn flytur verk frá ýmsum tímum eftir íslensk og erlend tónskáld. Einsöngvari með kórnum er Erla Björg Káradóttir. Lenka Mátéová leikur á orgelið og söngstjóri er Jón Ólafur Sigurðsson. Aðgangur er ókeypis. Sjá nánar hér til hliðar undir tónlistarstarf. Nánar (+)
Senn líður að lokum vetrarstarfs kirkjunnar, sumarið er framundan og þá taka við ný verkefni. Næsta sunnudag, 25. apríl munu þátttakendur í barnastarfi kirkjunnar, sunnudagaskóla og kirkjuprökkurum, fara í stutta ferð út fyrir bæjarmörkin. Lagt verður af stað kl. 12.15 og komið heim um kl. 17. Fundinn verður góður staður til leikja og skemmtunar, og svo munum við gæða okkur á grilluðum pylsum. Allir eru hjartanlega velkomnir í ferðina, bæði þátttakendur í starfinu og eins aðrir sem vilja gera sér glaðan dag úti í náttúrunni. Ferðin er öllum að kostnaðarlausu. Nánar (+)
Nú þegar fermingar eru afstaðnar tekur við hefðbundið helgihald sunnudagsins. Þann 25. apríl verður Tónlistarmessa í Hjallakirkju kl. 11. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar og félagar úr kór kirkjunnar syngja og leiða safnaðarsönginn. Gísli Valdemarsson leikur á gítar og Jón Ólafur situr við orgelið. Eftir hádegi fer barnastarfið í stutta ferð út fyrir bæjarmörkin, sjá nánar í frétt hér fyrir ofan. Nánar (+)
Á Sumardaginn fyrsta, 22. apríl, verður Skátamessa í Hjallakirkju kl. 11 á vegum skátafélagsins Kópar í Kópavogi. Sr. Sigfús Kristjánsson þjónar og sönginn leiða skátafélagar. Organisti er Jón Ólafur Sigurðsson. Allir eru velkomnir í skátamessuna. Nánar (+)
Sunnudagurinn 18. apríl er seinni dagur ferminga í Hjallakirkju. Þá verða tvær fermingar, sú fyrri kl. 10.30 og sú síðari kl. 13.30. Prestar kirkjunnar þjóna og félagar úr kórnum leiða safnaðarsönginn undir stjórn Jóns Ólafs, organista. Sunnudagaskólinn verður svo í neðri safnaðarsal kl. 13. Nánar (+)
Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hvatti biskup Ísland söfnuði til að verða sér út um skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis og láta hana liggja frammi í safnaðarheimilum kirknanna. Hjallasöfnuður hefur orðið við þessari beiðni og nú liggur skýrslan hér frammi til skoðunar. Öllu safnaðarfólki og öðrum er velkomið að glugga í skýrsluna hér í kirkjunni á opnunartíma og eiga samtal við starfsfólkið. Nánar (+)
Næsta sunnudag, 11. apríl, verða fyrstu fermingar í Hjallakirkju þetta árið. Fermingarmessur verða kl. 10.30 og 13.30. Prestar kirkjunnar þjóna við athafnirnar og kórinn leiðir safnaðarsönginn undir stjórn Jóns Ólafs, organista. Sunnudagaskólinn verður á sínum stað kl. 13, að þessu sinni á neðri hæðinni. Nánar (+)
Í kyrru viku og á páskum verður helgihald í Hjallakirkju sem hér segir: Á skírdagskvöld er passíustund með altarisgöngu kl. 20, á föstudaginn langa er kvöldvaka við krossinn kl. 20 og á páskadagsmorgun verður hátíðarguðsþjónusta kl. 8. Nánar (+)
Mánudaginn 29. mars verður hið árlega páskaeggjabingó í safnaðarheimili Hjallakirkju, efri hæð. Bingóið hefst kl. 20 og eru allir velkomnir, ungir sem aldnir. Í vinning eru páskaegg af öllum stærðum og gerðum. Bingóspjaldið kostar kr. 300. Allur ágóði af bingóinu rennur til barna- og æskulýðsstarfs kirkjunnar. Allir eru hjartanlega velkomnir. Nánar (+)
Þráinn Haraldsson æskulýðsfulltrúi mun predika í messu sunnudagsins. Annað verður með hefðbundum hætti. Sigfús Kristjánsson þjónar og Jón Ólafur Sigurðsson verður við orgelið. Sunnudagaskóli verður kl 13 og þar verður barn borið til skírnar. Nánar (+)
Næsti sunnudagur, 21. mars, er Boðunardagur Maríu. Að vísu er hann formlega haldinn hátíðlegur 25. mars en ef þann vikudag ber ekki upp á sunnudegi þá er notast við næsta sunnudag á undan í kirkjuárinu. Þennan dag verður guðsþjónusta í Hjallakirkju kl. 11. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar og barnakór úr Digranesskóla kemur í heimsókn og syngur undir stjórn Þórdísar Sævarsdóttur. Félagar úr kór kirkjunnar leiða safnaðarsönginn og organisti er Jón Ólafur Sigurðsson. Sunnudagaskólinn verður svo að sjálfsögðu á sínum stað kl. 13. Nánar (+)
Á fyrirsögn að dæma verður sunnudagurinn næsti, 14. mars, annasamur í Hjallakirkju. Guðsþjónusta verður kl. 11, sr. Sigfús Kristjánsson þjónar og félagar úr kórnum leiða safnaðarsönginn undir stjórn Jóns Ólafs, organista. Barn verður borið til skírnar. Strax að messu lokinni, kl. 12, verður aðalsafnaðarfundur Hjallasóknar haldinn. Venjuleg aðalfundarstörf fara fram á fundinum og léttur hádegisverður fram borinn á meðan. Í sunnudagaskólanum kl. 13 mun Stoppleikhópurinn sýna leikritið Kamilla og þjófurinn. Seinnipart dagsins, kl. 17, verða einsöngstónleikar. Sjá nánar um tónleikana hér til hliðar undir tónlistarstarf. Nánar (+)
Næstkomandi sunnudag, 7. mars, er æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar. Á þeim degi er minnt sérstaklega á barna og æskulýðsstarf kirkjunnar. Hér í Hjallakirkju munum við að sjálfsögðu halda daginn hátíðlegan. Sérstök æskulýðsguðsþjónusta verður á sunnudagsmorgninum kl. 11:00 Nánar (+)
Prestar í Kópavogi hafa tekið í gagnið vaktsíma sem notaður er á bakvöktum innan allra fjögurra safnaða Kópavogs. Um er að ræða síma sem fer á milli 8 prestanna í bænum, viku og viku í senn, og sinnir útköllum í bænum utan hefðbundins vinnutíma, skrifstofutíma, þ.e. á kvöldin, nætur og um helgar. Nýi vaktsíminn í Kópavogi er þessi: 843-0444. Nánar (+)
28. febrúar sem er annar sunnudagur í föstu verður sérstök áhersla á Passíusálma í guðsþjónustu dagsins kl. 11. Kór Hjallakirkju syngur m.a. 4 passíusálma við lög Jóns Ásgeirssonar. Einnig verður barn borið til skírnar í stundinni. Barnaguðsþjónusta verður að venju kl 13. Nánar (+)
Sunnudagurinn 21. febrúar er Konudagurinn. Þá verður guðsþjónusta í kirkjunni kl. 11, barnakór úr Hjallaskóla kemur í heimsókn og syngur undir stjórn Guðrúnar Magnúsdóttur. Félagar úr kór kirkjunnar syngja og leiða safnaðarsönginn undir stjórn Jóns Ólafs, organista. Sunnudagaskólinn er svo kl. 13, þá verður barn fært til skírnar. Nánar (+)
Sunnudaginn 14. febrúar verða orgel- og einsöngstónleikar í Hjallakirkju kl. 17. Flytjendur eru Kristín R. Sigurðardóttir, sópran, og Jón Ólafur Sigurðsson, organisti. Aðgangur er ókeypis. Nánar (+)
Guðspjall næsta sunnudags er skírn Jesú. 14. febrúar er samkvæmt kirkjuárinu sunnudagur í föstuinngang. Messa verður kl. 11 og sunnudagaskóli kl. 13. Nánar (+)
Lofgjörðarguðsþjónusta verður í kirkjunni kl. 11 á Biblíudaginn, 7. febrúar. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar og Þorvaldur Halldórsson leikur undir sönginn sem helgaður er deginum. Sunnudagaskóli er svo kl. 13. Nánar (+)
Næsti sunnudagur er fyrsti sunnudagur í níuviknaföstu. Það er messuhópur ungmenna sem sér um umgjörð stundarinnar undir forystu Þráins Haraldssonar æskulýðsfulltrúa. Sigfús Kristjánsson þjónar og Jón Ólafur Sigurðsson verður við orgelið. í tónlistarmessunni er lögð aðeins meiri áhersla á tónlistarflutning. sjá hér neðar. Nánar (+)
Sunnudagurinn 24. janúar er síðasti sunnudagur eftir þrettánda í kirkjuárinu og jafnframt bænadagur að vetri. Þá verður messa í Hjallakirkju kl. 11. Sr. íris Kristjánsdóttir þjónar og félagar úr kór kirkjunnar leiða safnaðarsönginn undir stjórn Jóns Ólafs, organista. Sunnudagaskólinn er svo eftir hádegi kl. 13. Nánar (+)
Næsta sunnudag, 17. janúar, verða orgeltónleikar í Hjallakirkju kl. 17. Kjartan Sigurjónsson, organisti í Digraneskirkju spilar á Björgvinsorgel Hjallakirkju verk eftir Zipoli, J.S. Bach, Buxtehude, Kokkonen, Medelssohn, Jón Þórarinsson og Pál Ísólfsson. Aðgangur er ókeypis og allir eru hjartanlega velkomnir. Nánar (+)
Söfnuðirnir í Kópavogi hafa tekið höndum saman og að Alfa námskeiði fyrir framhaldsskólanemendur. Á alfa er fjallað um lífið og tilveruna skemmtilegan og skýran hátt. Nánar (+)
Næsta sunnudag sem er annar sunnudagur eftir þrettánda verður messa með hefðbundnu sniði kl 11. Sigfús Kristjánsson þjónar og Jón Ólafur Sigurðsson verður við orgelið. Guðspjallstexti dagsins er frásagan af brúðkaupinu í Kana. Sunnudagaskóli verður að venju kl. 13. Nánar (+)
Dagana 5-11. janúar hefst barna og æskulýðsstarf kirkjunnar að nýju eftir jólafrí. Starfið er með sama sniði og fyrir jól og fer fram í aldursskiptum hópum sem hér segir: Nánar (+)
Þann 10. janúar verður messa kl. 11 í kirkjunni. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar og félagar úr kór kirkjunnar leiða safnaðarsönginn undir stjórn Jóns Ólafs, organista. Fyrsti sunnudagaskóli nýs árs verður svo eftir hádegi kl. 13. Nánar (+)
Fyrsta guðsþjónusta nýs árs verður sunnudaginn 3. janúar kl. 11. Sr. Sigfús Kristjánsson þjónar og félagar úr kór kirkjunnar leiða safnaðarsönginn. Organisti er Jón Ólafur Sigurðsson. Þess má geta að guðsþjónustunni verður útvarpað. Sunnudagaskólinn hefst viku síðar, sunnudaginn 10. janúar kl. 13. Nánar (+)
Á Gamlársdag, 31. desember, verður Aftansöngur í Hjallakirkju kl. 18. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar og kór kirkjunnar syngur og leiðir safnaðarsöng. Gunnar Jónsson syngur einsöng. Sungnir verða bæði hátíðarsöngvar og litanía sr. Bjarna Þorsteinssonar sem og þjóðsöngurinn. Organisti er Jón Ólafur Sigurðsson. Fyrsta guðsþjónusta á nýju ári verður sunnudaginn 3. janúar kl. 11. Nánar (+)
Jólagleði aldraðra er viðburður sem á sér langa sögu í söfnuðunum í austurbæ Kópavogs. Söfnuðirnir hafa skipst á að halda þessa hátíðarstund í Digranes- og Hjallakirkju og er fólk innan safnaðanna boðið hjartanlega velkomið. Jólagleðin verður núna í Digraneskirkju sunnudaginn 27. desember kl. 14. Söngvinir, kór aldraðra í Kópavogi, kemur í heimsókn og syngur undir stjórn Kjartans Sigurjónssonar. Að auki verður jólasaga flutt og jólasöngvar sungnir. Boðið er upp á veitingar í safnaðarsal kirkjunnar að dagskrá lokinni. Allir eru hjartanlega velkomnir. Nánar (+)
Það verður mikið um að vera í Hjallakirkju á jólum. Á aðfangadag verða þrjár samverustundir. Sú fyrsta er kl. 16 en þá verður Jólastund barnanna, Aftansöngur hefst svo kl 18 og á miðnætti, kl. 23.30 verða Jólasöngvar á jólanótt. Hátíðarguðsþjónusta verður á Jóladag kl. 14 og Fjölskylduguðsþjónusta á Annan dag jóla kl. 11. Sjá nánar dagskrá jólanna neðar í þessari frétt. Nánar (+)
Þann 20. desember kl. 11, fjórða sunnudag í aðventu, verða Jólasöngvar fjölskyldunnar. Um er að ræða fallega stund þar sem tækifæri gefst til að njóta kyrrðar og friðar í notalegu umhverfi á lokaspretti jólaundirbúningsins. Þessi stund er að enskri fyrirmynd með 7 ritningarlestrum og tónlist. Þarna verða flutt jólalög víða að og frá ýmsum tímum. Kór Hjallakirkju syngur undir stjórn Jóns Ólafs og gestakór er Kvennakór við Háskóla Íslands undir stjórn Margrétar Bóasdóttur. Kórarnir syngja sitt í hvoru lagi og einnig saman. Auk þess er almennur söngur. Fólk úr kirkjustarfinu annast lestrana. Allir eru hjartanlega velkomnir. Nánar (+)
Þriðja sunnudag í aðventu, 13. desember, er guðsþjónusta kl. 11 árdegis. Kór Snælandsskóla undir stjórn Svövu Kristínar Ingólfsdóttur kemur í heimsókn og syngur fyrir okkur nokkur jólalög. Sigfús Kristjánsson þjónar og Jón Ólafur Sigurðsson verður við orgelið. Félagar úr kór Hjallakirkju leiða söng. Kl. 13 er Jólaball sunnudagaskólans, við dönsum kringum jólatréð og fáum vonandi skemmtilega heimsókn. Nánar (+)
Árlegir aðventutónleikar Kórs Hjallakirkju verða að venju 2. sunnudag í aðventu þann 6. desember kl. 20. Fjölbreytt efnisskrá að venju. Boið upp á kakó og piparkökur eftir tónleikana. Ókeypis aðgangur. Nánar (+)
Annan sunnudag í aðventu, 6. desember verður heilmikið um að vera í Hjallakirkju. Kl. 11 verður lofgjörðaguðsþjónusta með Þorvaldi Halldórssyni þar sem sungin verða létt og falleg jólalög í tilefni aðventunnar. Kl. 17 er svo Batamessa á vegum Vina í bata, 12 spora starfsins í kirkjum á höfuðborgarsvæðinu. Fólk úr 12 spora starfinu í Hjallakirkju annast stundina. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar í báðum messunum. Ekki má gleyma sunnudagaskólanum sem verður á sínum stað kl. 13. Þá verður Kór Hjallakirkju með árlega aðventutónleika sína um kvöldið kl. 20. Sjá nánar annars staðar á síðunni. Nánar (+)
Fyrsta sunnudag í aðventu verður aðventuhátíð fjölskyldunnar í Hjallakirkju. Stundin hefst kl. 14. Börnin eru sérstaklega boðin velkomin að taka þátt í léttri jóladagskrá með söngvum og sögum. Nánar (+)
Fyrsti sunnudagur í aðventu markar upphaf nýs kirkjuárs sem og jólaundirbúningsins hjá mörgum. Þessum degi verður að sjálfsögðu fagnað í Hjallakirkju með guðsþjónustu. Nánar (+)
Safnaðarblað Hjallakirkju - Glatt á hjalla er komið út. Blaðinu verður dreift í vikunni á öll heimili í söfnuðinum. Einnig má finna blaðið hér. Nánar (+)
Nú líður nær jólafríi í barna og æskulýðsstarfi kirkjunnar. Við munum hafa fundi fram í miðjan desember. Síðasti fundur Ævintýraklúbbsins verður 7. desember auk undirbúnings fyrir helgileik þann 17. desember sem verður nánar auglýst síðar. Nánar (+)
Þriðjudaginn 24. nóvember verður fræðslufundur með foreldrum fermingarbarna í Hjallakirkju kl. 20-21.15. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir heldur fyrirlestur um samskipti barna og foreldra undir yfirskriftinni: Það vex sem að er hlúð. Foreldrar eru hvattir til að mæta á fundinn. Nánar (+)
Síðasti sunnudagur kirkjuársins er næsta sunnudag, 22. nóvember. Þá verður guðsþjónusta í kirkjunni kl. 11. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar. Tvö börn verða færð til skírnar og barnkór úr Digranesskóla kemur í heimsókn og syngur undir stjórn Þórdísar Sævarsdóttur. Félagar úr kór kirkjunnar leiða safnaðarsöng og Jón Ólafur situr við orgelið. Nánar (+)
Fyrir viku síðan gengu fermingarbörn í Hjallasókn í hús í sókninni og söfnuðu til Hjálparstarfs kirkjunnar. Söfnunin gekk mjög vel, alls söfnuðu börnin rúmlega 130 þúsund krónum til starfsins. Við þökkum safnaðarfólki hjartanlega fyrir stuðninginn og fermingarbörnunum fyrir hjálpina. Þessir fjármunir munu án efa koma að góðum notum. Nánar (+)
Óratorían Messías eftir Händel verður flutt í Hjallakirkju kl. 20.00. Fluttur verður allur fyrsti þátturinn úrdráttur úr þáttum 2 og 3. Óratorían verður flutt með orgeli eins og mjög algengt er á Bretlandi og að auki verða tveir trompetar. Aðgangseyrir kr. 1.500. Nánar (+)
Sunnudaginn 15. nóvember verður messa kl. 11 í kirkjunni. Sr. Sigfús Kristjánsson þjónar. Félagar úr kórnum leiða safnaðarsönginn og Jón Ólafur leikur á orgelið. Um kvöldið eru svo tónleikar Kórs Hjallakirkju, þau munu flytja Messías eftir Händel undir stjórn Jóns Ólafs (sjá nánar annars staðar á síðunni). Nánar (+)
Mánudaginn 9. nóvember munu fermingarbörn í Hjallakirkju ganga hús úr húsi í Hjallasókn og safna í bauka fyrir Hjálparstarf kirkjunnar. Hið sama munu fermingarbörn um allt land gera á þessum tíma, kl. 17.30-19.30. Safnaðarfólk er hvatt til að taka vel á móti börnunum og styrkja þetta góða málefni. Nánar (+)
Hönd í hönd, tónleikar til styrktar Mæðrastyrksnefnd Kópavogs verða haldnir í Hjallakirkju sunnudaginn 8. nóvember kl: 20:00. Kvennakór Kópavogs hafði frumkvæðið að tónleikunum með það að leiðarljósi að gera gagn í því efnahagslega fárviðri sem gengur yfir land og þjóð. Nánar (+)
Sunnudaginn 8. nóvember verður lofgjörðarguðsþjónusta kl. 11. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar og Þorvaldur Halldórsson leikur og syngur með viðstöddum létta lofgjörðartónlist. Nánar (+)
Næsta sunnudag 1. nóv er allra heilagra messa. Þá er sérstök stund þar sem við minnumst látinna. Eins og venja er á þessum kirkjudegi verður mikið lagt upp úr tónlistarflutningi. Þannig reynum við að skapa andrúm þar sem hver og einn getur í bænum sínum nálgast Guð. Nánar (+)
Næsti sunnudagur er 20. sunnudagur eftir þrenningarhátíð. Þá verður messa í Hjallakirkju kl. 11. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar og félagar úr kór kirkjunnar leiða safnaðarsönginn undir stjórn Jóns Ólafs, organista. Sunnudagaskólinn er kl. 13. Nánar (+)
Tilefni þessara skrifa minna er grein Davíðs Þórs Jónssonar í Fréttablaðinu mánudaginn 19. október Þar lýsir hann skoðun sinni á málefnum Selfosssafnaðar og sr. Gunnars Björnssonar. Í lok greinarinnar hvetur hann presta sem styðja ákvörðun biskups Íslands um tilfærslu sr. Gunnars í starfi að láta í sér heyra í stað þess að þegja þunnu hljóði. Nánar (+)
Aðrir tónleikar í tónleikaröð vetrarins verða næsta sunnudag kl. 17. Erla Björg Káradóttir sópran og Jón Ólafur organisti flytja okkur fallega tónlist eftir. Dietrich Buxtehude, Johann Sebastian Bach, Georg Friedrich Händel, Jeremijah Clarke, Felix Mendelssohn Bartholdy og Jón Leifs. Ókeypis aðgangur. Nánar (+)
Næsta sunnudag er fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Séra Sigfús Kristjánsson þjónar. Barnakór úr Hjallaskóla kemur í heimsókn, kórstjóri er Guðrún Magnúsdóttir. Félagar úr Kór Hjallakirkju syngja og leiða almennan söng. Organisti er Jón Ólafur Sigurðsson. Barnaguðsþjónustan er svo á sínum stað kl. 13 Nánar (+)
Við tónlistarmessuna 18. sunnudag eftir þrenningarhátíð kl. 11 þjónar sr. Íris Kristjánsdóttir. Félagar úr Kór Hjallakirkju syngja og leiða söfnuðinn í lofgjörðinni. Sigurborg Ragnarsdóttir leikur á þverflautu og Jón Ólafur verður við orgelið. Nánar (+)
Þorvaldur Halldórsson kemur í heimsókn á sunnudaginn 4. okt. og leiðir tónlist í Guðsþjónustu dagsins. Það er yfirleitt létt og notalegt andrúmsloft í stundunum með Þorvaldi og verður vonandi svo á sunnudaginn. Sr. Sigfús Kristjánsson þjónar. Sunnudagaskóli verður að venju kl. 13 Nánar (+)
Ævintýraklúbbur Hjallakirkju sem er fyrir 10 - 12 ára krakka mun nú hittast kl. 16:30 á mánudögum í stað 16:00. Fundirnir munu því vera alla mánudaga frá 16:30 - 17:30 Nánar (+)
Þann 27. september er messa í kirkjunni kl. 11. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar og félagar úr kórnum leiða safnaðarsönginn. Jón Ólafur, organisti, situr að venju við orgelið. Messuhópur nr. 2 aðstoðar við messuna ásamt fermingarbörnum. Nánar (+)
Á sunnudaginn verður fyrsta Guðsþjónustan sem messuhópar Hjallakirkju sjá um. Það verður messuhópur eitt sem verður að störfum á sunnudaginn. Guðspjallstexti dagsins er hinn þekkta frásögn af heimsókn Jesú til þeirra Mörtu og Maríu. Nánar (+)
Sem fyrr verður boðið upp á Tólf spora hópastarf í kirkjunni í vetur. Hér er um að ræða áhrifaríka og góða leið til að bæta sjálfan sig og samskipti við aðra. Fyrsti kynningarfundurinn verður miðvikudaginn 16. september kl. 20 og eru allir boðnir hjartanlega velkomnir. Nánar (+)
Fyrstu tónleikar vetrarins verða sunnudaginn 13. september kl. 17. Friðrik Vignir Stefánsson leikur á Björgvinsorgel Hjallakirkju verk eftir D. Buxtehude, J. S. Bach, G. F. Händel, Systkinin Fanny og Felix Mendelssohn, J. M. Michel og Susanne Kugelmeier. Nánar (+)
Nú hefur öllum fermingarbörnum í Hjallakirkju verið úthlutaður fermingardagur vorið 2010. Öll fengu það sem þau völdu í fyrsta sæti en sumar fermingar eru þéttsetnar. Vilji foreldrar breyta fermingardegi er hægt að hafa samband við sóknarprest. Nafnalista fermingardaganna má sjá hér til hliðar, undir Fermingarstarf, Fermingarfræðsla 2009-2010, Fermingar 2010. Nánar (+)
Þann 13. september verður guðsþjónusta kl. 11 í Hjallakirkju. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar. Barn verður borið til skírnar. Félagar úr kór kirkjunnar syngja og leiða safnaðarsönginn undir stjórn Jóns Ólafs, organista. Sunnudagaskólinn er á sínum stað kl. 13. Nánar (+)
Séra Sigfús Kristjánsson þjónar. Björgvin Birkir Björgvinsson leikur einleik á gítar. Björgvin leikur þætti úr Svítu í d moll eftir Robert de Viseé. Félagar úr kór kirkjunnar leiða söng og Jón Ólafur verður við orgelið. Fyrsti sunnudagaskóli vetrarins hefst svo kl. 13. Nánar (+)
Í vetur er ætlunin að fara af stað með svokallaða messuhópa. Þá mun aukast þátttaka safnaðarfólks í helgihaldinu og það verður sýnilegra í öllum þáttum þess. Gert er ráð fyrir að um 5 hópar verði myndaðir með u.þ.b. 5-7 manns í hverjum. Þátttakendur munu t.d. annast ritningarlestra, undirbúa kaffi eftir messu, lesa bænir og margt fleira. Þau sem hafa áhuga á að taka þátt í messuhópi sem þessum er bent á að hafa samband við presta kirkjunnar. Allir áhugasamir á öllum aldri eru velkomnir í hópana. Nánar (+)
Barnastarf kirkjunnar hefst nú í þessari viku. Starfið fer fram í aldursskiptum hópum. Ævintýraklúbbur Hjallakirkju er fyrir 10-12 ára börn. Klúbburinn hittist á mánudögum kl. 16 og stendur fundurinn til kl. 17. Nánar (+)
Sunnudaginn 30. ágúst er messa í Hjallakirkju kl. 11. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar. Félagar úr kór kirkjunnar leiða safnaðarsönginn undir stjórn Jóns Ólafs, organista. Nánar (+)
Hjallakirkja stendur fyrir öflugu og skemmtilegu starfi fyrir unglinga sem að hefst nú aftur eftir sumarfrí. Æskulýðsfélag kirkjunnar starfar í þremur deildum, 8. bekkkur, 9-10 bekkur og framhaldsskólakrakkar. Fyrsti fundurinn í vetur verður í kvöld fyrir 8. bekk og hefst hann kl. 20 Nánar (+)
Næsta sunnudag verður messa í Hjallakirkju kl: 11 og er nú formlegu sumarsamstarfi Kirkna í Kópavogi lokið. Fermingarbörn sem nú hafa hafið fræðslu eru sérstaklega boðin velkomin ásamt fjölskyldum sínum. Nánar (+)
Nú að loknum sumarfríum hefjast messur á ný á sunnudögum í Hjallakirkju. Næsta sunnudag, 16. ágúst, verður guðsþjónusta kl. 11. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar og félagar úr kór kirkjunnar leiða sönginn. Organisti er Jóhann Baldvinsson. Barn verður fært til skírnar í guðsþjónustunni. Nánar (+)
Söfnuðir þjóðkirknanna í Kópavogi tekið höndum saman um sumarafleysingar presta og bakvaktir þeirra, frá 15. júní til 15. ágúst. Komið hefur verið á sameiginlegri messugjörð í kirkjunum sem verður með þessum hætti: Nánar (+)
Næsta sunnudag, 14. júní, verður guðsþjónusta í Hjallakirkju kl. 11. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar og kvartett úr kór kirkjunnar leiðir safnaðarsöng. Organisti er Jón Ólafur Sigurðsson. Barn verður borið til skírnar í guðsþjónustunni. Nánar (+)
Á sjómannadaginn, 7. júní, verður guðsþjónusta í kirkjunni kl. 11. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar. Barn verður borið til skírnar. Kórfélagar leiða sönginn og Jóhann Baldvinsson leikur undir á orgel. Nánar (+)
Á hvítasunnudag verður guðsþjónusta í kirkjunni kl. 11 og á annan í hvítasunnu verður messa kl. 11. Á hvítasunnudag fáum við heimsókn frá Digranessöfnuði og sr. Yrsa Þórðardóttir prédikar. Prestar Hjallakirkju þjóna. Félagar úr kór kirkjunnar syngja og leiða safnaðarsöng. Organisti er Jón Ólafur Sigurðsson. Boðið er upp á veitingar í safnaðarsal að guðsþjónustu lokinni. Nánar (+)
Sunnudaginn 24. maí, sem er 6. sunnudagur eftir páska, verður messa í Hjallakirkju kl. 11. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar og félagar úr kór kirkjunnar syngja og leiða safnaðarsönginn. Organisti er Jón Ólafur Sigurðsson. Nánar (+)
Á uppstigningardag, fimmtudaginn 21. maí, verður guðsþjónusta í Digraneskirkju á vegum safnaðanna í austurbæ Kópavogs og hefst hún kl. 14. Dagurinn er sérstaklega helgaður öldruðum. Allir eru þó að sjálfsögðu velkomnir og hvattir til að mæta. Að guðsþjónustu lokinni er boðið til kaffisamsætis í safnaðarheimili kirkjunnar. Nánar (+)
Næsta sunnudag 17. maí er hinn almenni bænadagur. Á þeim degi hefur kirkja landsins sameinast í bæn fyrir ákveðnu fyrirbænarefni. að þessu sinni biðjum við fyrir þjóðinni í þeim vanda sem við er að etja. Nánar (+)
10. maí er mæðradagurinn, þá verður guðsþjónusta í Hjallakirkju kl. 11. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar og félagar úr kór kirkjunnar leiða safnaðarsönginn Organisti er Jón Ólafur Sigurðsson. Nánar (+)
Kynningarfundur fyrir væntanleg fermingarbörn í Hjallakirkju á næsta vetri, veturinn 2009-2010, fer fram í kirkjunni miðvikudaginn 6. maí kl. 18. Foreldrar og væntanleg fermingarbörn eru boðin velkomin. Nánar (+)
Sunnudaginn 3. maí verður Þorvaldur Halldórsson, tónlistarmaður, í guðsþjónustu kl. 11. Sr. Sigfús Kristjánsson þjónar. Þetta er síðasta guðsþjónustan í vetur sem Þorvaldur tekur þátt í með okkur en hann hefur komið einu sinni í mánuði og stjórnað söngnum af sinni alkunnu snilld. Nánar (+)
Síðastliðin miðvikudag fór fram útskrift úr Farskóla leitogaefni í Hafnarfjarðarkirkju Skólinn er samstarfsverkefni ÆSKR, ÆSKÞ og Biskupsstofu. Leiðtogaefni úr kirkjum á höfuðborgarsvæðinu sækja skólann. Nánar (+)
Nú fer barnastarfi kirkjunnar þennan vetur að ljúka og því munum við fara í stutt ferðalag út fyrir bæjarmörkin næsta sunnudag, 26. apríl kl. 13. Við munum finna góðan stað úti í náttúrunni, leika okkur og grilla pylsur. Allir eru hjartanlega velkomnir, ferðalagið kostar ekkert. Við munum koma aftur í kirkjuna um kl. 17. Nánar (+)
Messa verður kl. 11 þann 26. apríl. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar. Kórfélagar leiða sönginn og Jón Ólafur leikur undir á orgelið. Þessi sunnudagur er annar sunnudagur eftir páska. Barnastarfið fer í ferðalag eftir hádegi kl. 13, þá er lagt af stað, stundvíslega, út í náttúruna. Sjá nánar hér að ofan. Nánar (+)
Fyrsti sunnudagur eftir páska er 19. apríl. Guðsþjónusta verður kl 11 í umsjá Sr. Sigfúsar. Söngur verður í höndum kvenna úr kór kirkjunnar. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Sunnudagaskólinn er að venju kl. 13 Nánar (+)
Nú þegar páskarnir eru liðnir og skólar byrjaður á nýjan leik hefst einnig barna og æskulýðsstarf kirkjunnar. Rétt eins og fyrir páska er ávallt mikið fjör í barnastarfinu sem er eins og hér segir. Nánar (+)
Nú er dymbilvika hafin og framundan er stærsta hátíð okkar kristinna manna, sjálf páskahátíðin. Helgihald í Hjallakirkju verður með eftirfarandi hætti: Á skírdagskvöld er Passíustund í kirkjunni kl. 20, á föstudaginn langa verður Kvöldvaka við krossinn kl. 20 og á páskadagsmorgun er Hátíðarguðsþjónusta kl. 8 árdegis. Nánar (+)
Mánudaginn 6. apríl verður hið árlega páskaeggjabingó í safnaðarheimili Hjallakirkju, efri hæð. Bingóið hefst kl. 20 og eru allir velkomnir, ungir sem aldnir. Bingóvinningar eru margvíslegir; páskaegg, páskaskraut, sælgætiskörfur og fleira. Bingóspjaldið kostar kr. 300. Allur ágóði af bingóinu rennur til barna- og æskulýðsstarfs kirkjunnar. Safnaðarfólk, sem og aðrir, er hvatt til að mæta. Nánar (+)
Fermingar halda áfram næsta sunnudag, 5. apríl. Þá verður fermt fyrir og eftir hádegi, kl. 10.30 og 13.30. Fermingarbörnin sem fermast þennan dag eru 37 talsins, 19 fyrir hádegi og 18 eftir hádegi. Sunnudagaskólinn verður á neðri hæðinni kl. 13. Nánar (+)
Sunnudaginn 29. mars hefjast fermingar í Hjallakirkju. Þann dag verða tvær fermingarmessur, kl. 10.30 og 13.30. Alls fermast 36 börn í messunum. Sunnudagaskólinn er á sínum stað kl. 13 en að þessu sinni fer hann fram í neðri safnaðarsal. Allir eru hjartanlega velkomir. Nánar (+)
Fimmtudaginn 26. mars kemur Steinunn Leifsdóttir íþróttakennari í heimsókn í Uppsprettuna. Steinunn hefur starfað sem leiðsögumaður hjá Ferðafélagi Íslands og mun fjalla um nauðsynlegan útbúnað við gönguferðir og aðra útivist. Hún mun einnig segja frá nokkrum gönguleiðum í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Nánar (+)
Næsta sunnudag, 22. mars, koma krakkar úr kór Digranesskóla í heimsókn í guðsþjónustu og syngja fyrir viðstadda. Þórdís Sævarsdóttir er stjórnandi kórsins. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar og félagar úr kór kirkjunnar syngja og leiða safnaðarsöng undir stjórn Jóns Ólafs, organista. Sunnudagaskóli er svo að venju kl. 13. Nánar (+)
15. mars er þriðji sunnudagur í föstu. Í Hjallakirkju verður hefðbundin messa kl. 11. Textar dagsins eru nokkuð magnaðir og sjá má þá alla á vef þjóðkirkjunnar, kirkjan.is. Þekktastur þeirra er líklega lexían úr 2. Mósebók þar sem sagt sagt er frá boðorðunum tíu. Nánar (+)
Þann 12. mars n.k. kl. 10-12 flytur Sveinn Ásgeir Jónsson fyrirlestur með yfirskriftinni: Að takast á við fjárhagserfiðleika; miðlun reynslu. Allir eru hjartanlega velkomnir. Nánar (+)
Sunnudaginn 8. mars verður nóg um að vera í Hjallakirkju. Guðsþjónusta verður kl. 11, sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar og félagar úr kór kirkjunnar leiða safnaðarsöng undir stjórn Jóns Ólafs, organista. Barn verður borið til skírnar í guðsþjónustunni. Strax að henni lokinni verður aðalsafnaðarfundur í safnaðarsal kirkjunnar. Þar fara fram venjuleg aðalfundarstörf. Sunnudagaskólinn er svo kl. 13. Nánar (+)
Batamessa verður í Hjallakirkju sunnudaginn 1. mars kl. 17. Tilgangur messunnar er m.a. að styrkja 12 spora starf kristinnar kirkju. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar og fluttur verður vitnisburður af þátttakanda í 12 spora starfinu. Jón Ólafur Sigurðsson, organisti, leiðir tónlistina. Strax að lokinni messu verður boðið upp á léttan kvöldmat í safnaðarheimilinu. Nánar (+)
Sunnudagurinn 1. mars er æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar. Við höldum upp á daginn með guðsþjónustu þar sem unglingar úr starfi Hjallakirkju koma að flestum þáttum. Við fáum líka góða gesti þar sem Þorvaldur Halldórsson mun leiða sálmasöng og spila undir, svo kemur söngvarinn knái Jónsi í heimsókn og syngur fyrir okkur. Nánar (+)
Hjalla- og Digranessöfnuðir munu í sameiningu standa fyrir leiksýningunni Ég á mig sjálf! sem sýnd verður í Digraneskirkju föstudaginn 27. febrúar n.k. kl. 20. Leikritið fjallar um samskipti móður og dóttur sem er átröskunarsjúklingur. Nánar (+)
Sunnudagurinn 22. febrúar er konudagurinn. Þá verður tónlistarmessa í Hjallakirkju kl. 11. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar. Gunnlaugur Björnsson, nemandi í Tónlistarskóla Kópavogs, leikur þrjú einleiksverk á gítar og félagar úr Kór Hjallakirkju flytja m.a. sálmalög eftir Hildigunni Rúnarsdóttur og Maríu Brynjólfsdóttur. Nánar (+)
Sunnudagurinn 15. febrúar er Biblíudagurinn. Við fáum góða gesti í heimsókn guðsþjónustu frá Hjallaskóla sem syngja undir stjórn Guðrúnar Magnúsdóttur. Predikun, textar og sálmar dagsins munu fjalla á einhvern hátt um orð Guðs sem við finnum í Biblíunni. Sigfús Kristjánsson þjónar og Jón Ólafur leiðir söng og sálmasvör ásamt félögum úr kór kirkjunnar. Nánar (+)
Nú um helgina fer Æskulýðsfélag Hjallakirkju á febrúarmót ÆSKR í Vatnaskógi. Þar hittast unglingar úr kirkjum á höfuðborgarsvæðinu. Lagt verður af stað frá Breiðholtskirkju á föstudaginn kl. 18 og komið til baka á sama stað á sunnudeginum kl. 15 Nánar (+)
Næsta fimmtudag, 12. febrúar, verður fyrirlestur á vegum Uppsprettunnar í Hjallakirkju um greiðsluerfiðleika og samskipti í umsjá Sigurðar Erlingssonar hjá velgengni.is. Nánar (+)
Næstkomandi fimmtudag, 5. febrúar býður æskulýðsfélagið foreldrum unglinga í 8. bekk á foreldrafund. Þar verður sagt frá starfi æskulýðsfélagsins, þeim verkefnum sem framundan eru og ýmsu öðru. Nánar (+)
Barnastarfshátíð Reykjavíkurprófastsdæmis eystra verður haldin í 5. sinn í Grafarvogskirkju sunnudaginn 8. febrúar kl. 11.00. Markmið hennar er að bjóða sunnudagaskólum kirknanna að koma saman til hátíðar og finna sig í hinum stóra og breiða hópi barna sem sækir hinar ýmsu kirkjur. Barnastarf kirkjunnar er öflugt og kraftmikið þar sem börn, foreldrar, afar og ömmur geta notið þess að eiga saman uppbyggilega stund í kirkjunum sínum. Í fyrra mættu á milli 750 og 800 manns á hátíðina og heppnaðist hátíðin í alla staði mjög vel. Nánar (+)
Þann 8. febrúar verður messa kl. 11. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar og félagar úr kórnum leiða safnaðarsöng. Nemandi úr Söngskólanum í Reykjavík, Una Dóra Þorbjörnsdóttir, syngur einsöng í messunni. Organisti er Jón Ólafur Sigurðsson. Barnastarfshátíð verður í Grafarvogskirkju á sama tíma (sjá í frétt hér fyrir ofan). Nánar (+)
Frá og með 30. janúar verður opnunartími Uppsprettunnar, miðstöðvar fyrir atvinnulaust fólk, opin á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum kl. 9-12. Allir eru hjartanlega velkomnir. Sjá dagskrá hér. Nánar (+)
1. feb. kemur Þorvaldur Halldórsson í heimsókn. Hann mun leiða söng og messusvör í guðsþjónustu sunnudagsins. Þessar stundir eru ávallt notalegar og góð tilbreyting í helgihaldi kirkjunnar. Nánar (+)
Messa verður næsta sunnudag, 25. janúar, kl. 11. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar og félagar úr kórnum syngja og leiða safnaðarsönginn undir stjórn Jóns Ólafs, organista. Einsöngvari er Særún Harðardóttir en hún syngur Frið á jörðu eftir Árna Thorsteinson og aríuna How beutiful are the Feet of them that preach the gospel of peace eftir Georg Frierich Händel. Barn verður borið til skírnar. Sunnudagaskólinn er á sínum stað kl. 13. Nánar (+)
Uppsprettan, miðstöð fyrir atvinnulaust fólk, hefur hafið göngu sína í Hjallakirkju og er hún starfrækt alla virka daga kl. 9-12. Þann 22. janúar nk. verður kynningarfundur á starfseminni kl. 16.30 í kirkjunni. Allir eru velkomnir. Nánar (+)
Foreldrar 6-9 ára barna í Snælandsskóla fengu í vikunni orðsendingu um Kirkjuprakkarar í Snælandsskóla. Þau mistök urðu, að sagt er í tilkynningunni að fundirnir séu á fimmtudögum. Hið rétta er að Kirkjuprakkarar í Snælandsskóla hittast á þriðjudögum kl. 16 í stofu D1. Biðjum við velvirðingar á þessum mistökum. Starf fyrir 6-9 ára börn í Hjallaskóla og Digranesskóla fer hins vegar fram á fimmtudögum kl. 16-17 í safnaðarsal Hjallakirkju. Nánar (+)
Hjallakirkja, Lindakirkja og Digraneskirkja standa nú fyrir sameiginlgu alfa námskeiði fyrir unglinga. Á Alfa er fjallað um grundvallaratriði kristinnar trúar og skýran og einfaldan hátt en námskeiðin hafa notið mikillar hylli bæði hér á Íslandi og víða um heim. Nánar (+)
Guðsþjónusta verður með hefðbundnum hætti næsta sunnudag. Guðspjall dagsins er sagan af tollheimtumanninum Sakkeusi sem klifrar upp í tré til að sjá Jesú. Sigfús Kristjánsson þjónar og organisti verður Jón Ólafur Sigurðsson. Félagar úr kór kirkjunnar leiða söng og messusvör. Sunnudagaskólinn verður að venju kl 13. Nánar (+)
Við lítum björtum augum á nýja árið og höldum inn í framtíðina með bjartsýni og von í brjósti. Næsta sunndag, 11. janúar, verður messa í Hjallakirkju kl. 11. Félagar úr kór kirkjunnar syngja og leiða safnaðarsöng undir stjórn Jóns Ólafs, organista og sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar. Eftir hádegi kl. 13 verður svo sunnudagskólinn. Börnin munu fá nýjar kirkjubækur afhendar og svo einn límmiða í bókina fyrir hverja mætingu. Nánar (+)
Nú í vikunni hefst barna og æskulýðsstarf kirkjunnar á nýjan leik eftir jólafrí. Á þriðjudaginn hittust kirkjuprakkarar, 6-9 ára börn í Snælandsskóla og á fimmtudaginn verður fundur kirkjuprakkara hér í kirkjunni og æskulýðsfundur 8. bekkjar. Á mánudag hefst svo TTT starfið auk æskulýðsfélag 9-10 bekkjar. Nánar (+)
Fyrsta guðsþjónusta nýs árs verður sunnudaginn 4. janúar kl. 11. Sr. Sigfús Kristjánsson þjónar og kvartett úr kór kirkjunnar leiðir safnaðarsönginn. Organisti er Jón Ólafur Sigurðsson. Sunnudagaskólinn er kl. 13. Nánar (+)
Á Gamlársdag, 31. desember, verður aftansöngur í Hjallakirkju kl. 18. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar og Kór Hjallakirkju syngur og leiðir safnaðarsöng. Einar Clausen syngur einsöng. Við aftansönginn verða sungnir bæði hátíðarsöngvar og litanía sr. Bjarna Þorsteinssonar. Organisti er Jón Ólafur Sigurðsson. Nánar (+)
Undanfarin ár hafa Digranes- og Hjallasöfnuðir skipst á að halda jólagleði aldraðra í kirkjum safnaðanna. Nú er komið að okkur í Hjallakirkju að vera gestgjafar og bjóða eldri borgara velkomna í kirkjuna þann 28. desember kl. 14. Um er að ræða hátíðarstund þar sem sungnir verða jólasálmar, jólasaga sögð og ýmislegt annað skemmtilegt gert sér til gamans. Söngvinir, kór aldraðra í Kópavogi syngur jólalög og sálma undir stjórn Kjartans Sigurjónssonar. Boðið er upp á veitingar í safnaðarsal kirkjunnar að dagskrá lokinni. Nánar (+)
Á jólum verður mikið um að vera í Hjallakirkju. Á aðfangadag jóla verða þrjár samverustundir í kirkjunni, jólastund fjölskyldunnar kl. 16, aftansöngur kl. 18 og jólasöngvar á jólanótt kl. 23.30. Á jóladag verður hátíðarguðsþjónusta kl. 14 og annan dag jóla verður skírnar- og fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Nánar (+)
Samkvæmt hefð verða jólasöngvar fjölskyldunnar á 4. sd. í aðventu. Gestakór að þessu sinni er Kór Átthagafélags Strandamanna, söngstjóri Krisztina Kalló Szklenár sem syngur ásamt Kór Hjallakirkju. Kórarnir syngja saman og einnig hvor fyrir sig og taka svo undir í söng allra viðstaddra kirkjugesta. Séra Sigfús Kristjánsson stjórnar ritningarlestri. Organisti og söngstjóri er Jón Ólafur Sigurðsson. Nánar (+)
Sunnudaginn 14. desember verður aðventukvöld unglinga í Hjallakirkju. Stundin er í umsjá æskulýðsfélagsins og er gott tækifæri til að koma á annarskonar jólastund í kirkjuna. Hljómsveit frá KSS (Kristilegum skólasamtökum) munu leiða tónlistina. Nánar (+)
Jólin nálgast óðum, framundan er 3. sunnudagur í aðventu. Þá verður lofgjörðarguðsþjónusta kl. 11 með Þorvaldi Halldórssyni. Þorvaldur leikur létta jólasöngva og syngur með viðstöddum. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar. Jólaball sunnudagaskólans verður svo kl. 13. Þá ætlum við að dansa og syngja er við göngum í kringum jólatréð. Við fáum jólasveininn í heimsókn sem bæði mun skemmta börnunum og gefa þeim eitthvað góðgæti. Nánar (+)
Árlegir aðventutónleikar Kórs Hjallakirkju verða haldnir 2. sunnudag í aðventu, 7. desember nk., kl. 20. Að venju verður efnisskráin fjölbreytt með aðventu- og jólalögum úr ýmsum áttum og fá ýmsum tímum. Nánar (+)
Undirbúningur jóla heldur áfram og næsta sunnudag kveikjum við á næsta kerti sem er Betlehemskertið. Messa verður á sínum stað kl 11. Sigfús Kristjánsson þjónar og Jón Ólafur situr við orgelið. Félagar úr kór kirkjunnar leiða söng og messusvör. Nánar (+)
Fyrsta sunnudag í aðventu, 30. nóvember, verður aðventuhátíð fjölskyldunnar í Hjallakirkju kl. 16. Þá bjóðum við börnin sérstaklega velkomin að taka þátt í léttri jóladagskrá með söngvum og sögum sem jólunum tengjast. Barnakór úr Hjallaskóla kemur í heimsókn og syngur undir stjórn Guðrúnar Magnúsdóttur. Einnig verður á stundinni sýnt leikritið Vinátta sem Brúðuleikhúsið flytur. Þar fáum við að kynnast risanum eigingjarna sem rekur alla krakka úr garðinum sínum en uppgötvar svo að hann á enga vini og því verður lífið ekkert skemmtilegt. Þá hittum við líka prinsessuna og froskinn sem hafa ýmislegt skemmtilegt að segja. Nánar (+)
Næsta sunnudag hefst nýtt kirkjuár, fyrsta sunnudag í aðventu. Þá verður tónlistarguðsþjónusta í Hjallakirkju kl. 11. Félagar úr kór kirkjunnar syngja fallega aðventusálma og leiða safnaðarsöng. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar og barn verður borið til skírnar í guðsþjónustunni. Sunnudagaskólinn er svo kl. 13 og Aðventuhátíð fjölskyldunnar verður kl. 16 (sjá nánar í frétt hér fyrir ofan). Nánar (+)
Nýtt kirkjuár hefst fyrsta sunnudag í aðventu og er næsti sunnudagur, 23. nóvember, því síðasti sunnudagur þessa kirkjuárs. Ritningarlestrar dagsins endurspegla þessi tímamót og er guðspjall dagsins Matt, 25. 31-46. Þekktur texti þar sem m.a. er þessi setning: ,,Allt sem þér gerðuð einum minna minnstu bræðra, það hafið þið gert mér." Nánar (+)
Á síðasta fimmudag komu unglingar úr Digraneskirkju og Lindakirkju í heimsókn og tóku þátt í skemmtilegum leik. Þessi árlegi viðburður hefur einfaldlega verið kallaður Kópavogsdagurinn. Unglingarnir kepptu í ýmsum þrautum í anda survivor, þar sem reyndi á ýmsa þætti. Hér má sjá nokkrar myndir frá fimmtudeginum. Nánar (+)
Þorvaldur Halldórsson mun koma í heimsókn til okkar næsta sunnudag, 16. nóvember, og leika undir sönginn í guðsþjónustunni. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar. Barn verður borið til skírnar í athöfninni. Nánar (+)
Síðastliðin fimmtudag fóru Kirkjuprakkarar í Hjallakirkju í nokkra skemmtilega leiki. Kirkjuprakkarar eru 6-9 börn sem koma einu sinni í viku í kirkjunna til að taka þátt í skemmtilegu og uppbyggjandi starfi. Hér má sjá nokkrar myndir af síðasta fundi. Nánar (+)
9. nóvember er Kristniboðsdagur Þjóðkirkjunnar. Að venju verður prédikun dagsins tengd störfum kristniboða. Sigfús Kristjánsson þjónar og sýnir í prédikun myndir frá ferð sinni á kristniboðsstöðvar kirkjunnar í Kenya. Þrír gítarnemendur úr Tónlistarskóla Kópavogs leika tónlist. Sunnudagaskólinn er svo að venju kl. 13. Nánar (+)
Batamessa verður í Hjallakirkju næsta sunnudag, 2. nóvember, kl. 17. Um er að ræða messu á vegum Vina í bata, fólks sem tekið hefur þátt í 12 spora námskeiðum í ýmsum kirkjum um land allt. Tilgangur messunnar er að styrkja 12 spora starfið í kirkjum landsins. Nánar (+)
Messa verður á allra heilagra messu kl. 11 í Hjallakirkju, sunnudaginn 2. nóvember. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar. Kór kirkjunnar syngur og leiðir almennan söng. Gunnar Jónsson syngur einsöng. Kórinn frumflytur tvo þætti úr sæluboðum Fjallræðunnar eftir Hauk Ágústsson. Organisti og söngstjóri er Jón Ól. Sigurðsson. (Sjá nánar um tónlistina undir Tónlistarstarf hér til hliðar). Í messunni verður látinna minnst á sérstakan hátt. Sunnudagaskóli er kl. 13 og Batamessa sem tengist 12 spora starfinu verður kl. 17 (sjá nánar í frétt hér að ofan). Nánar (+)
Messa verður í Hjallakirkju sunnudaginn 26. október kl. 11. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar og félagar úr kór kirkjunnar leiða safnaðarsöng. Organisti er Jón Ólafur Sigurðsson. Nánar (+)
Það verður einfalt form á guðsþjónustu sunnudagsins. Sigurborg Ragnarsdóttir mun leiða tónlist í stundinni og leika á þverflautu. Sigurborg er í kór kirkjunnar. Sigfús Kristjánsson þjónar. Sunnudagaskólinn verður að venju kl. 13. Nánar (+)
Kórtónleikar Kórs Hjallakirkju verða haldnir þriðjudaginn 14. október kl. 20. Kristin R. Sigurðardóttir, sópran og Einar Clausen, tenór, flytja Requiem eftir Gabriel Fauré og fleiri rómantískar perlur. Orgelleikari er Lenka Mátéová og söngstjóri Jón Ólafur Sigurðsson. Aðgangseyrir er kr. 1.500. Nánar hér til hliðar undir Tónlistarstarf Nánar (+)
Frá og með næsta fimmtudegi verður samvera kirkjuprakkara á breyttum tíma, eða frá 16-17 í stað 16:30-17:30. Með þessu erum við að færa fundartíma okkar til móts við opnunartíma frístundaheimilis skólans og erum að koma til móts við óskir foreldra. Nánar (+)
Þorvaldur Halldórsson kemur í heimsókn til okkar næsta sunnudag, 12. október, og leiðir sönginn í guðsþjónustu kl. 11. Þorvaldur er okkur að góðu kunnur en undanfarin ár hefur hann komið einu sinni í mánuði og sungið með og fyrir okkur á sinn sérstaka hátt. Sr. Sigfús Kristjánsson leiðir stundina. Sunnudagaskólinn er svo kl. 13. Nánar (+)
Tónlistarmessa verður sunnudaginn 5. október í Hjallakirkju kl. 11. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar. Kór kirkjunnar leiðir safnaðarsögninn undir stjórn Jóns Ólafs, organista. Jóhanna Halldórsdóttir syngur einsöng og flytur nokkra gamla sálma úr íslenskum handritum. Sunnudagaskóli er kl. 13 eftir hádegi. Nánar (+)
Næsta sunnudag verður messa kl. 11 í umsjá sr. Írisar Kristjánsdóttur. Félagar úr kór kirkjunnar syngja og leiða safnaðarsönginn. Organisti er Jón Ólafur Sigurðsson. Sunnudagaskólinn er svo eftir hádegi kl. 13. Nánar (+)
Starf Hjallakirkju fyrir börn á aldrinum 10-12 ára fer fram undir heitinu TTT, tíu til tólf ára. Fundir fara fram á mánudögum og hefjast kl. 16:30. Hægt er að koma kl. 16:00 en þá opnar húsið og hægt er að leika sér í kirkjunni áður en fundurinn hefst. Nánar (+)
Messa verður í kirkjunni næsta sunnudag kl. 11. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar og kvartett úr kór kirkjunnar leiðir safnaðarsönginn undir stjórn Jóns Ólafs, organista. Nánar (+)
Nú í vetur mun Hjallakirkja vera með kirkjuprakkara í Snælandsskóla. Starf kirkjuprakkarar er ætlað fyrir 6-9 börn. Vegna fjarlægðar frá kirkjunni hafa yfirleitt fá börn úr hverfinu í kringum Snælandsskóla tekið þátt í starfinu. Nánar (+)
Skólakór Hjallaskóla kemur í heimsókn í guðsþjónustu á sunnudaginn kemur. Hann mun syngja undir stjórn Guðrúnar Magnúsdóttur. Guðspjall dagsins er úr 14. kafla Lúkasarguðspjalls versum 1-11. Sr Sigfús Kristjánsson leiðir stundina og Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Sunnudagaskólinn verður á sínum stað kl 13. Nánar (+)
Þá er vetrarstarfið í Hjallakirkju hafið og allt komið í fullan gang. Næsta sunnudag, 7. september verður tónlistarmessa kl. 11 og fyrsti sunnudagaskólinn kl. 13. Nánar (+)
Síðastliðinn fimmtudag hófst vetrarstarf æskulýðsfélagsins með fyrsta fundinum fyrir krakka í 8. bekk. Það var fjölmennur hópur unglinga sem mætti og skemmti sér saman í kirkjunni. Aðrir þættir barna- og æskulýðsstarfsins fara nú að hefjast einn af öðrum. Nánar (+)
Hefðbundin guðsþjónusta verður í Hjallakirkju á sunnudaginn kl. 11. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Félagar úr kór kirkjunnar leiða söng og messusvör. Prestur: Sigfús Kristjánsson. Guðspjall dagsins er úr Matteusarguðspjalli sjötta kafla versum 24-34. Sjáumst í kirkjunni okkar. Nánar (+)
Messa verður í Hjallakirkju sunnudaginn 24. ágúst kl. 11. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar. Kórfélagar leiða sönginn og Jón Ólafur spilar undir á orgelið. Fermingarbörn og foreldrar eru sérstaklega boðin velkomin í messuna. Nánar (+)
Nú stendur yfir fermingarnámskeið í Hjallakirkju, svokallað ágústnámskeið, fyrir þau fermingarbörn sem það kjósa. Um 67 börn eru skráð í fræðsluna sem fer fram fyrir og eftir hádegi vikuna 18.-21. ágúst. Nánar (+)
Nú þegar sumarfrí eru að baki hefst hefðbundið helgihald sunnudagsins í Hjallakirkju á ný. Þann 17. ágúst verður messa í kirkjunni kl. 11. Sr. Sigfús Kristjánsson þjónar. Nánar (+)
Áfram heldur samstarf safnaðanna í Kópavogi yfir sumarmánuðina. Þann 10. ágúst verður helgistund í Lindakirkju kl. 11 í umsjá sr. Írisar Kristjánsdóttur. Á sama tíma verður messa í Kópavogskirkju í umsjá sr. Ægis Fr. Sigurgeirssonar og eftir hádegi kl. 14 er helgistund í Digraneskirkju í umsjá sr. Ægis. Nánar (+)
Þann 3. ágúst verður helgistund á vegum safnaðanna í Kópavogi í Digraneskirkju kl. 11. Sr. Yrsa Þórðardóttir þjónar. Nánar (+)
Nú er æskulýðsfélagið í sumafríi sem að verður rofið á morgun með sumarfundi. Fundurinn verður á morgun, 16. júlí, kl. 20 í kirkjunni. Þrátt fyrir framkvæmdir á okkar vanalega fundastað látum við það ekki stoppa okkur. Nánar (+)
Helgihald safnaðanna í Kópavogi næstu sunnudaga verður í Digranes- og Lindakirkju. 20. og 27. júlí verður messa í Digraneskirkju kl. 11 og í Lindakirkju, safnaðarheimili Lindasóknar, kl. 14. Sr. Gunnar Sigurjónsson þjónar við messurnar. Nánar (+)
Þann 13. júlí mun sr. Magnús Magnússon messa í Hjallakirkju kl. 11 og í Kópavogskirkju kl. 14. Jón Ólafur Sigurðsson, organisti, leiðir safnaðarsönginn. Nánar (+)
Samstarf safnaðanna í Kópavogi heldur áfram. Næsta sunnudag verður messa í Hjallakirkju kl. 11 og einnig í Kópavogskirkju kl. 14. Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson þjónar og Jón Ólafur Sigurðsson situr við orgelið. Nánar (+)
Næsta sunnudag 29. júní verður helgistund í Kópavogskirkju í umsjá sr. Ægis Fr. Sigurgeirssonar. Helgistundin verður kl. 11 og í kjölfar hennar er kirkjuferð Kópavogssafnaðar. Kl. 14 verður svo guðsþjónusta í Hjallakirkju í umsjá sr. Magnúsar Björnssonar. Organisti við báðar stundir er Lenka Mateova. Nánar (+)
Framundan í sumar er sameiginlegt helgihald safnaðanna í Kópavogi. Næstu sunnudaga verður messa í Kópavogskirkju kl. 11:00 og svo helgistund í Hjallakirkju kl. 14:00. Næsta sunnudag 22. júní mun Sr. Sigfús Kristjánsson leiða stundirnar ásamt Lenku Mátéovu, organista Kópavogskirkju. Nánar (+)
Næsta sunnudag þann 8. júní verður helgistund í Hjallakirkju kl 11. árdegis. Við notum þá einfaldara form en við hefðbundna guðsþjónustu. Stundinn verður í umsjá sr. Sigfúsar og munu nokkrir kórfélagar leiða sálmasöng ásamt Sigurborgu Ragnarsdóttur sem leikur á þverflautu. Sjáumst í kirkjunni okkar á sunnudaginn. Nánar (+)
1. júní er sjómannadagurinn, þá verður messa í Hjallakirkju kl. 11. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar og félagar úr kór kirkjunnar leiða safnaðarsönginn. Organisti er Smári Ólason. Nánar (+)
Fimmtudaginn 22. maí var síðasta Opna hús vetrarins. Við lögðum land undir fót og heimsóttum Keflavíkurkirkju. Þar tók á móti okkur Sr. Skúli Ólafsson sóknarprestur og sýndi okkur bæði kirkju og safnaðarheimili ásamt því að segja okkur frá starfi og sögu safnaðarins. Nánar (+)
Næsta sunnudag, 25. maí kl. 14, verður guðsþjónusta á vegum félags fyrrverandi presta í Hjallakirkju. Sr. Guðmundur Þorsteinsson og sr. Gísli H. Kolbeins þjóna fyrir altari og sr. Ólöf Ólafsdóttir prédikar. Nánar (+)
Þann 25. maí verður messa í kirkjunni kl. 11. Sr. Sigfús Kristjánsson þjónar og félagar úr kór kirkjunnar leiða safnaðarsönginn. Organisti er Jón Ólafur Sigurðsson. Texta dagsins má finna hér. Nánar (+)
Næsta sunnudag, 18. maí, verður guðsþjónusta kl. 11. Þá mun barnakór úr Digranesskóla koma í heimsókn og syngja fyrir viðstadda undir stjórn Þórdísar Sævarsdóttur. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar. Nánar (+)
Á fimmtudaginn munu Kirkjuprakkarar hittast á nýjan leik, eftir tveggja vikna frí. Að vanda verður skemmtilega dagskrá en starfið er ætlað 6-9 ára börnum. Fundurinn hefst kl. 16:30 en húsið opnar kl. 16:00. Nánar (+)
Á Hvítasunnudag kl 11. verður sameiginleg hátíðarguðsþjónusta hjá Hjalla og Digranessókn. Prestar Digraneskirkju þjóna og Sigfús Kristjánsson prestur Hjallakirkju predikar. Að þessu sinni er messan í Digraneskirkju. Nánar (+)
Síðasta lofgjörð vetrarins með Þorvaldi Þorvaldssyni verður sunnudaginn 4. maí kl. 11. Þorvaldur syngur og leikur undir safnaðarsönginn af sinni alkunnu snilld. Nánar (+)
Á uppstigningardag, fimmtudaginn 1. maí, verður guðsþjónusta í Hjallakirkju á vegum safnaðanna í austurbæ Kópavogs og hefst hún kl. 14. Dagurinn er sérstaklega helgaður öldruðum. Allir eru þó að sjálfsögðu velkomnir og hvattir til að mæta. Nánar (+)
Sunnudaginn 27. apríl fer barnastarfið í Hjallakirkju í vorferð út fyrir bæjarmörkin. Lagt verður af stað frá Hjallakirkju að neðanverðu kl. 13 og fundinn góður staður nálægt höfuðborgarsvæðinu. Nánar (+)
Næsta sunnudag munum við fá góða heimsókn úr Ólafsvík í messu kl. 11. Sóknarprestur safnaðarins, sr. Magnús Magnússon, þjónar ásamt sr. Sigfúsi Kristjánssyni, og félagar úr Kirkjukór Ólafsvíkur syngja og leiða safnaðarsönginn ásamt Kór Hjallakirkju. Söngstjóri Ólafsvíkurkirkju er Veronica Osterhammer sem syngur einsöng og organisti Elena Makkeva. Organisti og söngstjóri Hjallakirkju er Jón Ólafur Sigurðsson. Nánar (+)
Nú um helgina mun æskulýðsfélag Hjallakirkju halda í Ölver í vorferðalag. Farið verður af stað á laugardeginum 26. apríl kl. 12:00 frá kirkjunni og komið heim á sama stað kl. 18 á sunnudeginum. Nánar (+)
Í tilefni þess að á síðasta ári voru liðin 20 ár frá stofnun Hjallasafnaðar og einnig 20 ár frá því að kór kirkjunnar hóf starf sitt svo og að Hjallakirkja á 15 ára vígsluafmæli í vor verða tónleikar í Hjallakirkju þriðjudaginn 22. apríl 2008 kl. 20.30 með tónlist eftir Joseph Haydn og Wolfgang Amadeus Mozart. Nánar (+)
Nú þegar fermingar eru afstaðnar tekur við hefðbundið helgihald á sunnudögum í Hjallakirkju. Næsta sunnudag, 20. apríl, verður messa kl. 11. Nánar (+)
Laus er til umsóknar staða ræstis við Hjallakirkju. Um er að ræða 50% stöðu sem greidd er eftir launasamningum VR. Staðan er laus frá og með 1. maí n.k. Starfið fer að mestu fram fyrir hádegi. Nánar (+)
Nú á sunnudaginn er síðasta fermingarmessa þessa vors í Hjallakirkju. Messan hefst kl. 10:30 og munu 23 ungmenni fermast. Nánar (+)
Fimmtudaginn 10. apríl fórum við sem sækjum opið hús í Hjallakirkju í heimsókn í Hallgrímskirkju. Þar var vel tekið á móti okkur af Sr. Birgi Ásgeirssyni. Nánar (+)
Í kvöld mun æskulýðsfélagið fara í óvissuferðalag. Vegna þess eru líkur á því að fundurinn dragist eitthvað og muni ekki ljúka fyrr en kl. 22 í stað 21:30. Nánar (+)
Fermingarfræðslu er formlega lokið í Hjallakirkju og fermingar eru framundan. Næstu þrjá sunnudaga verða alls fimm fermingar í kirkjunni. Nánar (+)
Eftir stutt páskafrí hefst barna og æskulýðsstarf kirkjunnar í vikunni. Á fimmtudaginn, þann 27. mars verður Kirkjuprakkarafundur fyrir 6-9 ára börn. Fundurinn hefst kl. 16:30 en húsið opnar kl. 16. Nánar (+)
Í kyrru viku og á páskum verður helgihald í Hjallakirkju með hefðbundnum hætti. Á skírdagskvöld er passíustund kl. 20, á föstudaginn langa er kvöldvaka við krossinn kl. 20 og á páskadagsmorgun kl. 8 árdegis verður svo hátíðarguðsþjónusta. Nánar (+)
Mánudaginn 17. mars verður hið árlega páskaeggjabingó í safnaðarheimili Hjallakirkju, efri hæð. Bingóið hefst kl. 20 og eru allir velkomnir, ungir sem aldnir. Nánar (+)
Á Pálmasunnudag verður guðsþjónusta í Hjallakirkju kl. 11. Sr. Sigfús Kristjánsson þjónar og kór kirkjunnar leiðir safnaðarsöng undir stjórn Jóns Ólafs, organista. Nánar (+)
Nú í vetur hafa fjórir unglingar úr Hjallakirkju tekið þátt í Farskóla leiðtogana sem er samstarfsverkefni Biskupsstofu og Reykjavíkurprófastsdæma. Þar hafa þau fengið fræðslu um leiðtoga hlutverkið ásamt unglingum úr öðrum kirkjum á höfuðborgasvæðinu. Nánar (+)
Messa verður sunnudaginn 9. mars kl. 11. Að messu lokinni verður aðalfundur Hjallasafnaðar haldinn. Á fundinum fara fram venjuleg aðalfundarstörf. Nánar (+)
Næsti sunnudagur, 2. mars, er æskulýðsdagur kirkjunnar. Þá verður guðsþjónusta á hefðbundnum tíma kl 11 og mun Þorvaldur Halldórsson leiða söng í þeirri stund. Prestur er Sigfús Kristjánsson. Nánar (+)
Sunnudaginn 24. febrúar verður tónlistarmessa í Hjallakirkju kl. 11. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar. Nánar (+)
Kammmerkór Akraness heldur tónleika í Hjallakirkju sunnud. 17. febr. kl. 16.00. Stjórnandi er Sveinn Arnar Sæmundsson. Nánar (+)
Í messu næsta sunnudag, 17. febrúar, fáum við kirkjukór, organista og sóknarprest Akraneskirkju í heimsókn. Þessir góðu gestir munu koma ríkulega að helgihaldinu. Nánar (+)
Nú þegar heimasíðan er loksins komin í lag getum við aftur sett fréttir hér á forsíðuna, án vandkvæða. Messa verður næsta sunnudag, 10. febrúar kl. 11. Nánar (+)
Næsta sunnudag, 10. febrúar, verður sameiginleg barnastarfshátíð fyrir alla sunnudagaskólana í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra. Nánar (+)
Messa verður sunnudaginn 27. janúar kl. 11 í Hjallakirkju. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar. Nánar (+)
Næsti sunnudagur er sá fyrsti í níuviknaföstu. Guðspjall dagsins er ritað hjá Matteusi 20 kafla versum 1-16. Aðrir ritningarlestrar eru úr Jeremía og fyrra Korinthubréfi. Nánar (+)
Guðsþjónusta verður sunnudaginn 13. janúar kl. 11. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar. Nánar (+)
Sunnudaginn 30. desember verður ekki guðsþjónusta í Hjallakirkju. Á Gamlársdag verður aftansöngur kl. 18. Nánar (+)
Þorvaldur Halldórsson mun mæta í lofgjörðarguðsþjónustu þann 16. desember, 3. sunnudag í aðventu, og leika undir og syngja létta jólasöngva með viðstöddum. Nánar (+)
Við syngjum inn jólin í Hjallakirkju sunnudaginn 23. desember kl. 11.00 Nánar (+)
Síðasti sunnudagaskóli fyrir jól verður sunnudaginn 16. desember. Þá ætlum við að halda jólaball, dansa og syngja í kringum jólatréð. Nánar (+)
Aðventutónleikar Kórs Hjallakirkju verða sunnudaginn 9. desember kl. 20. Flutt verður fjölbreytt dagskrá með aðventu- og jólasöngvum frá ýmsum tímum og úr ýmsum áttum. Nánar (+)
Á öðrum sunnudegi í aðventu verður messa í Hjallakirkju kl. 11. Sr. Sigfús Kristjánsson þjónar. Nánar (+)
Næst sunnudag, fyrsta aðventusunnudaginn, verður aðventuhátíð fjölskyldunnar í Hjallakirkju kl. 17. Þá bjóðum við börnin sérstaklega velkomin að taka þátt í léttri jóladagskrá með söngvum og sögum sem jólunum tengjast. Nánar (+)
Þann 2. september hefst nýtt kirkjuár, þá er fyrsti sunnudagur í aðventu. Kantötuguðsþjónusta verður kl. 11 í Hjallakirkju. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar. Nánar (+)