Álfaheiði 17 | 200 Kópavogur
Sími 554 6716 | hjallakirkja@hjallakirkja.is
Vaktsími presta í Kópavogi: 843-0444
Prestar Kópavogs hafa tekið upp samstarf um vaktsíma utan venjulegs skrifstofutíma. Vaktsíminn er símanúmer sem hægt er að hringja í vegna aðkallandi málefna sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.
Opnunartími í Hjallakirkju er á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum kl. 10-16 og á föstudögum kl. 11-14.
Viðtalstími presta er þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 11-12.
Messur eða guðsþjónustur eru hvern sunnudag kl. 11 og sunnudagaskólinn kl. 13
Bænastundir eru hvern þriðjudag kl. 18
Kóræfingar eru á þriðjudögum kl. 20
Kirkjuprakkarar, 6-8 ára starf, er á fimmtudögum kl. 16 í Hjallakirkju og á þriðjudögum kl. 16 í Snælandsskóla, stofu D1
Ævintýraklúbbur fyrir 9-12 ára er á mánudögum kl. 16
Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 8. bekk er á fimmtudögum kl. 20
Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 9. og 10. bekk er í Digraneskirkju á þriðjudögum kl. 19.30
Fjölskyldumorgnar eru á miðvikudögum kl. 10-12
12 spora hópar eru á miðvikudögum kl. 20, fyrsti fundur er 22. september
AA-fundir eru hvern þriðjudag kl. 19.30
Vortónleikar Kórs Hjallakirkju verða í Hjallakirkju þriðjudaginn 18. maí kl. 20. Þetta eru þriðju tónleikar kórsins á þessu starfsári. Efnisskráin að þessu sinni er að mestu veraldleg með fjölbreyttri efnisskrá. Einsöngvarar með kórnum eru Einar Clausen og Kristín Ragnhildur Sigurðardóttir.
Af efnisskránni má nefna nefna íslenskar perlur eftir Árna Harðarson, Báru Grímsdóttur, Friðrik Jónsson, Hjálmar H. Ragnarsson, Inga T. Lárusson, Jón Nordal, Karl O. Runólfsson og Stefán S. Stefánsson. Af erlendum lögum má nefna Næturljóð eftir Chopin, Dóná svo blá eftir Johann Strauss, Våren eftir Grieg, Hallelujah eftir Leonard Cohen og fleira.
Einar syngur nokkur lög eftir Sigfús Halldórsson sem hefði orðið níræður á þessu ári. Sum laganna eru vel kunn en önnur minna þekkt og ekki síðri perlur en þau þekktari. Kristín syngur tvö létt óperettulög, Summertime úr Porgi and Bess og Wien, du Stadt meiner Träume. Saman syngja þau ásamt kórnum ástardúettinn Varir þegja eftir Lehar og Sól rís, sól sest úr Fiðlaranum á þakinu. Karlakvartett stigur á stokk og lítill hópur kórfélaga flytur okkur gullfallegt lag eftir John Rutter.
Kórinn lýkur nú 23. starfsári sínu og eru þetta þriðju tónleikarnir á starfsárinu. Aðalverkefnið í vetur var flutningur á 1½ tíma úrdrætti úr Messíasi eftir Händel í nóvember 2009. Kórinn er skipaður rúmlega 40 söngvurum sem æfa einu sinni í viku frá 1. september og út maí og skiptast kórfélagar á söng við helgihaldið í Hjallakirkju.
Píanóleikari á tónleikunum er Julian Isaacs og gítarleikari er Halldór Másson. Söngstjóri kórsins er Jón Ólafur Sigurðsson. Aðgangseyrir er kr. 1.500