Messuhópar
Síðustu tvo vetur hafa svokallaðir messuhópar verið starfræktir hér í Hjallakirkju. Hugmyndin að baki er sú að auka með því þátttöku safnaðarfólks í helgihaldinu og að það verði sýnilegra í öllum þáttum þess. Um 4-5 hópar hafa verið myndaðir með u.þ.b. 3-5 manns í hverjum. Þátttakendur annast t.d. ritningarlestra, undirbúa kaffi eftir messu, lesa bænir og margt fleira.
Þau sem hafa áhuga á að taka þátt í þessu verkefni geta haft samband við presta kirkjunnar. Öllum er velkomið að taka þátt.