Álfaheiði 17 | 200 Kópavogur
Sími 554 6716 | hjallakirkja@hjallakirkja.is
Vaktsími presta í Kópavogi: 843-0444
Prestar Kópavogs hafa tekið upp samstarf um vaktsíma utan venjulegs skrifstofutíma. Vaktsíminn er símanúmer sem hægt er að hringja í vegna aðkallandi málefna sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.
Opnunartími í Hjallakirkju er á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum kl. 10-16 og á föstudögum kl. 11-14.
Viðtalstími presta er þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 11-12.
Messur eða guðsþjónustur eru hvern sunnudag kl. 11 og sunnudagaskólinn kl. 13
Bænastundir eru hvern þriðjudag kl. 18
Kóræfingar eru á þriðjudögum kl. 20
Kirkjuprakkarar, 6-8 ára starf, er á fimmtudögum kl. 16 í Hjallakirkju og á þriðjudögum kl. 16 í Snælandsskóla, stofu D1
Ævintýraklúbbur fyrir 9-12 ára er á mánudögum kl. 16
Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 8. bekk er á fimmtudögum kl. 20
Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 9. og 10. bekk er í Digraneskirkju á þriðjudögum kl. 19.30
Fjölskyldumorgnar eru á miðvikudögum kl. 10-12
12 spora hópar eru á miðvikudögum kl. 20, fyrsti fundur er 22. september
AA-fundir eru hvern þriðjudag kl. 19.30
Verkefni starfsársins 2009-2010 verða að venju fjölbreytt. Kórinn í heild eða messuhóparnir flytja yfirlett kórverk eftir prédikun í messum og stundum einnig undir altarisgöngu. Við þessi tækifæri flytur kórinn ýmist fallegar sálmaútsetningar og ýmsar mótettur tilheyrandi þema dagsins og tilefninu. Helstu verkefnin í vetur eru úrdráttur úr óratoríunni Messías eftir Händel ar sem allur 1. hlutinn verður fluttur ásamt völdum atriðum úr 2. og 2. þætti. Þessi flutningur er fyrirhugaður 15. nóvember kl. 20. Sunnudaginn 6. desember kl. 20 eru árlegir Aðventusöngvar kórsins og sunnudaginn 20. desember verða síðan árlegir Jólasöngvar kl. 11.
Vortónleikar eru síðan fyrirhugaðir um miðjan maí 2010.

Mynd af kórnum á aðventutónleikum í desember 2007

Mynd af kórnum í Dimmuborgum 2009