Álfaheiði 17 | 200 Kópavogur
Sími 554 6716 | hjallakirkja@hjallakirkja.is
Vaktsími presta í Kópavogi: 843-0444
Prestar Kópavogs hafa tekið upp samstarf um vaktsíma utan venjulegs skrifstofutíma. Vaktsíminn er símanúmer sem hægt er að hringja í vegna aðkallandi málefna sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.
Opnunartími í Hjallakirkju er á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum kl. 10-16 og á föstudögum kl. 11-14.
Viðtalstími presta er þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 11-12.
Messur eða guðsþjónustur eru hvern sunnudag kl. 11 og sunnudagaskólinn kl. 13
Bænastundir eru hvern þriðjudag kl. 18
Kóræfingar eru á þriðjudögum kl. 20
Kirkjuprakkarar, 6-8 ára starf, er á fimmtudögum kl. 16 í Hjallakirkju og á þriðjudögum kl. 16 í Snælandsskóla, stofu D1
Ævintýraklúbbur fyrir 9-12 ára er á mánudögum kl. 16
Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 8. bekk er á fimmtudögum kl. 20
Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 9. og 10. bekk er í Digraneskirkju á þriðjudögum kl. 19.30
Fjölskyldumorgnar eru á miðvikudögum kl. 10-12
12 spora hópar eru á miðvikudögum kl. 20, fyrsti fundur er 22. september
AA-fundir eru hvern þriðjudag kl. 19.30
Opið hús í Hjallakirkju er samvera eldri borgara í hádeginu annan hvern fimmtudag. Þar hittumst við í safnaðarsalnum og borðum saman hádegismat sem seldur er á vægu verði. Gjarnan er farið með gamanmál eða fengnir gestir í heimsókn á þessum stundum. Oftar en ekki kemur fyrirlestur, hugleiðing eða ferðasaga frá þátttakendum Opna hússins. Við endum svo alltaf með helgistund í kirkjunni. Miðað er við að samveran hefjist kl. 12 og ljúki svo um kl. 14.
Við starfsfólk Hjallakirkju bjóðum ykkur hjartanlega velkomin í Opið hús og hlökkum til að sjá ykkur í vetur.
Opið hús fram að jólum verður eftirfarandi daga: 9. og 23. september, 7. og 21. október, 4. og 18. nóvember og svo jólasamvera 2. desember.
