HJALLAKIRKJA

Álfaheiði 17 | 200 Kópavogur
Sími 554 6716 | hjallakirkja@hjallakirkja.is

Á döfinni

Vaktsími presta í Kópavogi: 843-0444

Prestar Kópavogs hafa tekið upp samstarf um vaktsíma utan venjulegs skrifstofutíma. Vaktsíminn er símanúmer sem hægt er að hringja í vegna aðkallandi málefna sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.

 

Opnunartími í Hjallakirkju er á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum kl. 10-16 og á föstudögum kl. 11-14.

 

Viðtalstími presta er þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 11-12.

 

Messur eða guðsþjónustur eru hvern sunnudag kl. 11 og sunnudagaskólinn kl. 13

 

Bænastundir eru hvern þriðjudag kl. 18

 

Kóræfingar eru á þriðjudögum kl. 20

 

Kirkjuprakkarar, 6-8 ára starf, er á fimmtudögum kl. 16 í Hjallakirkju og á þriðjudögum kl. 16 í Snælandsskóla, stofu D1

 

Ævintýraklúbbur fyrir 9-12 ára er á mánudögum kl. 16

 

Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 8. bekk er á fimmtudögum kl. 20

 

Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 9. og 10. bekk er í Digraneskirkju á þriðjudögum kl. 19.30

 

Fjölskyldumorgnar eru á miðvikudögum kl. 10-12

 

12 spora hópar eru á miðvikudögum kl. 20, fyrsti fundur er 22. september

 

AA-fundir eru hvern þriðjudag kl. 19.30

 

 

Skírnir, brúðkaup, jarðafarir

UPPLÝSINGAR


Skírn

Í skírninni er skírnþegi tekinn inn í kirkju Krists. Í hinni evangelísk–lúthersku kirkju, sem Þjóðkirkjan er hluti af, er algengast að barn sé skírt meðan það enn er ómálga. Samkvæmt fyrirmælum Jesú Krists er barn skírt til nafns föður og sonar og heilags anda. Það er helgað Guði með Orði hans og bæn og ausið vatni.
Meginreglan er sú að barn sé skírt í kirkju og að viðstöddum söfnuði eða fulltrúum hans, en gömul hefð er fyrir því á Íslandi að skírn geti farið fram á í heimahúsi.
Aðstandendur velja barninu skírnarvotta, eða guðforeldra. Þeir eru aldrei aldrei færri en tvö en geta mest verið fimm. Æskilegt er að í það minnsta eitt guðfeðginana sé á þeim aldri að það geti fylgt barninu eftir til fullorðinsára. Foreldrar og guðfeðgin játa trúna fyrir hönd barns síns og skuldbinda sig þar með til að ala barnið upp í kristinni trú.


Hjónavígsla

Hjónavígsla nefnist sú athöfn þegar brúðhjón ganga til kirkju til þess að biðja Guð að blessa hjúskap sinn. Það sem greinir kirkjulega hjónavígslu frá borgaralegri er fyrst og fremst ákveðin afstaða brúðhjónanna til kristinnar trúar. Þetta er kristin hjúskaparstofnun og þess vegna verður a.m.k. annað brúðhjónanna að tilheyra Þjóðkirkjunni.
Meginregla er að kirkjubrúðkaup fari fram í kirkju. Í það minnsta skulu vera viðstaddir tveir vottar, eða svaramenn. Heimild er fyrir því að giftingarathöfn geti farið fram á heimili eða utanhúss.
Þegar um er að ræða hjúskap erlendra ríkisborgara eða þegar annað eða bæði hjónaefni hafa lögheimili erlendis þá gefa sýslumannsembættin út könnunarvottorð um hjúskaparskilyrði. Nánari upplýsingar um það er að finna á vefjum sýslumannsembættanna.


Kvartett úr Kór Hjallakirkju hefur tekið að sér að syngja við brúðkaup og önnur hátíðleg tækifæri ef svo ber undir. Allar nánari upplýsingar um það gefur Jón Ólafur, organisti.


Útför

Þegar einhver úr söfnuðinum deyr þá fer fram útfararathöfn, venjulega í kirkju, og síðan greftrun í kirkjugarði. Undanfari hennar er kistulagning, sem er bænastund með aðstandendum. Einkenni útfararathafnarinnar er hin kristna von um upprisu og eilíft líf. Í trú á Jesú Krist leggjum við þau sem við kveðjum í vígða mold. Oftast eru þau sem deyja jarðsett í venjulegri kistu, en ef líkbrennsla hefur farið fram að lokinni útfararathöfninni þá er duftkerið jarðsett.

Prestar veita allar nánari upplýsingar og veita aðstendendum þá aðstoð sem þarf við undirbúning útfarar. Útfararstofur á höfuðborgarsvæðinu veita líka góða þjónustu í þessum efnum.



Þér er velkomið að ræða við presta kirkjunnar um ofangreindar athafnir með því að hringja í Hjallakirkju á viðtalstímum, senda tölvupóst til þeirra (sjá hér til hliðar) eða á netfang kirkjunnar, hjallakirkja@hjallakirkja.is.



Prestar og starfsfólk:

Sóknarprestur:

Íris Kristjánsdóttir
Sími 891-6716
Netfang:
iris (hjá) hjallakirkja.is

Prestur:

Sigfús Kristjánsson
Sími 864-2640
Netfang:
sigfus (hjá) hjallakirkja.is

Organisti:

Jón Ólafur Sigurðsson
Sími 899-8965
Netfang:
jon (hjá) hjallakirkja.is

Kirkjuvörður:

Inga Hrönn Pétursdóttir
Sími 867-0007
Netfang:
inga (hjá) hjallakirkja.is

Æskulýðsfulltrúi:

Þráinn Haraldsson
Sími 866-0112
Netfang:
thrainn (hjá) hjallakirkja.is

Fela þetta