Home > Safnaðarstarf > Tólf sporin – andlegt ferðalag

Tólf sporin – andlegt ferðalag

12 sporin – andlegt ferðalag

Sem fyrr verður boðið upp á Tólf spora hópastarf í kirkjunni í vetur. Hér er um að ræða áhrifaríka og góða leið til að bæta sjálfan sig og samskipti við aðra. Sporin tólf sem margir þekkja úr AA-starfinu eru notuð á þessu andlega ferðalagi sjálfskoðunar og endurhæfingar. Þetta námskeið er hins vegar ekki bundið því að fólk þekki sporin, þangað eru allir velkomnir hver sem bakgrunnur þeirra er.

Farið verður yfir kynningarefnið á fjórum fundum sem verða  kl. 20 á miðvikudögum og verður fyrsti fundur haustið 2011 þann 21. september. Á þessum fyrstu fundum er kynnt hvernig hvernig unnið er í Tólf sporunum eftir bókinni Tólf sporin – Andlegt ferðalag, og gefst fólki kostur á að átta sig á hvort þessi vinna hentar því og hvort það vilji vera með á ferðalaginu. Á fjórða fundi er ákvörðun tekin og eftir það verður hópunum lokað. Unnið er í litlum hópum. Efnið er lesið heima, spurningum svarað og síðan deilir hópurinn með sér niðurstöðunum. Lögð er áhersla á nafnleynd og trúnað. Enginn þarf að skilgreina sig fyrirfram, þ.e. enginn þarf að hafa nein skilgreind vandamál, fíkn eða slíkt heldur aðeins að langa til að auka lífsgæði sín á félagslega og tilfinningalega sviðinu.

Til frekari glöggvunar er hægt að kíkja á nánara lesefni á lesefnið Algengt hegðunarmynstur hér til hliðar. Þá minnum við á heimasíðu tólf spora námskeiðanna: www.viniribata.is.

Vertu velkomin(n) á sporafund.