HJALLAKIRKJA

Álfaheiði 17 | 200 Kópavogur
Sími 554 6716 | hjallakirkja@hjallakirkja.is

Á döfinni

Vaktsími presta í Kópavogi: 843-0444

Prestar Kópavogs hafa tekið upp samstarf um vaktsíma utan venjulegs skrifstofutíma. Vaktsíminn er símanúmer sem hægt er að hringja í vegna aðkallandi málefna sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.

 

Opnunartími í Hjallakirkju er á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum kl. 10-16 og á föstudögum kl. 11-14.

 

Viðtalstími presta er þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 11-12.

 

Messur eða guðsþjónustur eru hvern sunnudag kl. 11 og sunnudagaskólinn kl. 13

 

Bænastundir eru hvern þriðjudag kl. 18

 

Kóræfingar eru á þriðjudögum kl. 20

 

Kirkjuprakkarar, 6-8 ára starf, er á fimmtudögum kl. 16 í Hjallakirkju og á þriðjudögum kl. 16 í Snælandsskóla, stofu D1

 

Ævintýraklúbbur fyrir 9-12 ára er á mánudögum kl. 16

 

Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 8. bekk er á fimmtudögum kl. 20

 

Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 9. og 10. bekk er í Digraneskirkju á þriðjudögum kl. 19.30

 

Fjölskyldumorgnar eru á miðvikudögum kl. 10-12

 

12 spora hópar eru á miðvikudögum kl. 20, fyrsti fundur er 22. september

 

AA-fundir eru hvern þriðjudag kl. 19.30

 

 

Annað starf

UPPLÝSINGAR


Prédikunarklúbbur presta

Þriðjudagsmorgna kl. 9:15 hittast prestar og djáknar í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra í Hjallakirkju í prédikunarklúbbi. Sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur prófastsdæmisins, stýrir samverunum og er viðfangsefni hverrar stundar prédikunartexti næsta sunnudags. Markmið klúbbsins er einnig að stuðla að samfélagi milli nágrannapresta og auka tengslin milli kirknanna. Allt áhugafólk um guðfræði er velkomið í klúbbinn.


ITC Fífa

Fyrsta og þriðja miðvikudag í mánuði yfir vetrartímann hittast konur á vegum ITC samtakanna á Íslandi. ITC er félagsskapur sem býður upp á sjálfsnám og sjálfstyrkingu, t.d. þjálfun í ræðumennsku, fundarsköpum, nefndarstörfum, mannlegum samskiptum og fleira. Markmið ITC er að hvetja til aukins persónulegs þroska einstaklingsins, með því að:

* Skapa tækifæri til að æfa tjáskipti, samskipti og stjórnun á reglulegum deildarfundum og með þátttöku í nefndarstörfum, stjórnarstörfum og samvinnu á efri stigum samtakanna
* Gefa kost á hæfnismati eða mati á því hvort aðili hefur nýtt sér námsefni, ásamt ábendingum um áframhaldandi framfarir og þjálfun

Í Hjallakirkju starfar ITC deildin Fífa en tilgangur þeirra sem starfa í ITC Fífu er að þjálfa sig í ræðumennsku, fundarsköpum og mannlegum samskiptum. Allir eru hjartanlega velkomnir í heimsókn. Netfang ITC Fífu er itcfifa@isl.is. Nánari upplýsingar er að finna á vef ITC samtakanna á Íslandi.


AA-fundir

Á þriðjudagskvöldum eru opnir AA bókarfundir í Hjallakirkju 19.30. Allir eru hjartanlega velkomnir.

Prestar og starfsfólk:

Sóknarprestur:

Íris Kristjánsdóttir
Sími 891-6716
Netfang:
iris (hjá) hjallakirkja.is

Prestur:

Sigfús Kristjánsson
Sími 864-2640
Netfang:
sigfus (hjá) hjallakirkja.is

Organisti:

Jón Ólafur Sigurðsson
Sími 899-8965
Netfang:
jon (hjá) hjallakirkja.is

Kirkjuvörður:

Inga Hrönn Pétursdóttir
Sími 867-0007
Netfang:
inga (hjá) hjallakirkja.is

Æskulýðsfulltrúi:

Þráinn Haraldsson
Sími 866-0112
Netfang:
thrainn (hjá) hjallakirkja.is

Fela þetta