Home > Tónlist > Kórinn

Kórinn

Kór Hjallakirkju var stofnaður 1987 og er því á sínu 25. starfsári. Aðalhlutverk kórsins sem skipaður er um 40 félögum, er að annast söng við helgiathafnir í Hjallakirkju, sem skiptist niður á milli kórfélaga. Kórinn heldur auk þess tvenna til þrenna tónleika á ári í kirkjunni. Kórinn hefur farið í þrjár söngferðir til útlanda. Vorið 1999 til Svíþjóðar og Danmerkur, vorið 2002 til Þýskalands og til Noregs í maí 2005. Auk þessa hefur kórinn farið í nokkrar söngferðir innanlands. Kórinn stefnir á tónleikaferð til Svíþjóðar í maí 2012.

.

Kórinn í heild eða messuhóparnir flytja yfirlett kórverk eftir prédikun í messum og stundum einnig undir altarisgöngu. Við þessi tækifæri flytur kórinn ýmist fallegar sálmaútsetningar og/eða ýmsar mótettur tilheyrandi þema dagsins og tilefninu.

.

Kórinn er að fullskipaður eins og er, en áhugasamir geta haft samband við Jón organista til að kanna málið.

.

Kórinn æfir einu sinni í viku á þriðjudagskvöldum milli kl. 20 og 22 frá mánaðarmótum ágúst – september og út maí ár hvert.

Mætingar við messur og guðsþjónustur eru skemalagðar og kórnum skipt í messukóra.

Æfingabúðir eru einn langur laugardagur í Hjallakirkju að hausti og helgi í Skálholti að vori.

Allar nánari upplýsingar má fá hjá söngstjóra í GSM 899 – 8965 eða með tölvupósti jon hja hjallakirkja.is.

Stjórn kórsins skipa: Emma Eyþórsdóttir, formaður, Fjóla Grímsdóttir, ritari, Anna M. Pétursdóttir, gjaldkeri, Katrín V. Karlsdóttir og Andrés Jónsson meðstjórnendur.

Söngstjóri kórsins frá 1. sept. 1998 er Jón Ólafur Sigurðsson.

 

Haustið 2011 syngur kórinn við Tónlistar- og miningarguðsþjónustu 6. nóvember kl. 11. Aðventutónleikar verða 4. desember kl. 20. og Jólasöngva 18. des. kl. 11.

Vorið 2012 syngur kórinn vortónleika 15. maí kl. 20.

 

Verkefni starfsársins 2010-2011 var að venju fjölbreytt. Helstu verkefni vetrarins voru aðventutónleikar 5. desember og jólasöngvar 19. desember. 13. mars 2011 flutti kórinn og einsöngvarar Krýningarmessu Mozarts ásamt hinu stórkostlega Te Deum eftir Jón Þórarinsson. Vortónleikar með léttri veraldlegri og sumarlegri tónlist var 24. maí. Nánara má lesa um flytjendur á tónlistarsíðunni.

.

Innan kórsins starfar lítill kammerhópur, misstór eftir verkefnum. Hann var með Minningartónleika á allraheilagra messu 2010, Jólasöngva á Jólanótt og Passíustund á föstudaginn langa kl. 15 þar sem fluttir voru m.a. sálmar  úr Jóhannesarpassíunni og fleikra.

Félagar úr kammerhópnum annast einnig söng við útfarir sé þess óskað.

.

Helstu verkefnin 2009-2010 vou 1 1/2 tíma úrdráttur úr óratoríunni Messías eftir Händel 15. nóvember kl. 20. Einsöngvarar voru Erla Björg Káradóttir, sópran, Kristín R. Sigurðardóttir sópran, Ingunn Sigurðardóttir, sópran, Einar Clausen, tenór og Eiríkur Hreinn Helgason, bassi.  Sunnudaginn 6. desember kl. 20 voru árlegir Aðventusöngvar kórsins og sunnudaginn 20. desember árlegir Jólasöngvar kl. 11.
Vortónleikar voru 18. maí 2010. Starfsárinu lauk síðan með tónleikaferð til Hvammstanga laugardaginn 5. júní.

.

Helstu verkefnin veturinn 2008 – 2009 voru Requiem eftir Gabriel Fauré sem flutt var í október. Frumflutningur á köflum úr Sæluboðunum í tónsetningu eftir Hauk Ágústsson í nóvember. Aðventutónleikar og Jólasöngvar í desember. Frumflutningur á 10 nýjum Passíusálmalögum eftir Jón Ásgeirsson í Hallgrímskirkju á föstudaginn langa og þátttaka í Kórastefnu á Mývatni 5. – 7. júní 2009 þar sem kórinn söng sjálfstæða efnisskrá 4. júní í Skjólbrekku og 5. júní í Dimmuborgum, auk þess að taka þátt söng blönduu kóranna á As-dúr messu eftir Schubert.

Auk þessa flutti kórinn eða hópar úr kórnum ýmis smæri verk við guðsþjónustur og messur í Hjallakikju. Á hvítasunnudag 2009 fluttu félagar úr kórnum þætti úr stuttri messu (Missa brevis) eftir Hildigunni Rúnarsdóttur.

Mynd af kórnum á aðventutónleikum í desember 2007

Meðal verka sem kórinn hefur flutt á sjálfstæðum tónleikum og í helgiathöfnum er Þýsk messa (Deutsche Messe) og Messa í G dúr eftir Franz Schubert. Messa kv. 259 og valdir kaflar úr Reqiem eftir Mozart. Requiem (Sálumessa) eftir G. Fauré. Te Deum laudamus eftir Jón Þórarinsson (frumflutningur á endanlegri útgáfu verksins og flutt nokkrum sinnum síðan). Missa brevis st. Johanni de Deo og Messa í B-dúr “Therezienmesse” eftir Joseph Haydn.

Auk þessa má nefna Messu í D-dúr Op. 86 eftir Dorák sem kórinn flutti í samstarfi við Kór Vídalínskirkju (kórstjóri: Jóhann Baldvinsson) og Kór Fella- og Hólakirkju (söngstjóri: Lenka Matéová).  og Messu i As-dúr eftir Franz Schubert D-678 sem flutt var á Kórastefnu við Mývatn í 7. júní 2009.

Mynd af kórnum í Dimmuborgum 2009

Einnig má nefna fjölda smærri mótetta og kórverka eftir ýmsa höfunda, nýja sem gamla, kirkjuleg verk sem veraldleg og nokkur þeirra í frumflutningi.

Haustið 2006 gaf kórinn út geisladiskinn “Í Guðs hús okkur Kristur kallar” en þar er að finna íslenskar kirkjutónperlur eftir ýmsa höfunda.

Kórinn hefur tekið þátt í samstarfi kirkjukóra Reykjavíkurprófastsdæmis-eystra þar sem meðal annars hafa verið frumflutt tónverk sem kórarnir hafa pantað hjá viðkomandi tónskáldum.