Home > Tónlist > Tónlist haust 2007

Tónlist haust 2007

30. september. Lofgjörðarguðsþjónusta kl. 11.00.

Séra Sigfús Kristjánsson þjónar og Þorvaldur Halldórsson sér um tónlistarflutninginn.

7. október. Tónlistarguðsþjónusta kl. 11.00

Að þessu sinni verður tónlistin við messuna úr ýmsum áttum. Séra Íris Kristjánsdóttir þjónar, félagar úr Kór Hjallakirkju syngja, einsöngvari er Kristín R. Sigurðardóttir. Organisti og söngstjóri er Jón Ólafur Sigurðsson. Flutt verður miskunnarbæn eftir Orlando di Lasso, frumfluttur verður nýr Dýrðarsöngur við tónlist eftir Rolf Karlsen í íslenskri aðlögun Jóns Ólafs Sigurðssonar sem byggir á víxlsöng forsöngvara eða kórs og safnaðar.

Einnig Gratias agimus tibi eftir Sigurð Þórðarson Op. 9 nr. 5,

Allsherjar Drottinn eftir César Franck, O Salutaris hostia eftir Franz Schubert og Dona nobis pacem eftir Eyþór Stefánsson. Auk þessa er að sjálfsögðu almennur safnaðarsöngur.

4. nóvember kl. 11.00 Tónlistarguðþjónusta

Eins og venja er á Allra heilagra messu verður meira lagt í tónlistina við guðsþjónustu dagsins. Auk þess sem minnst verður látinna. Kór Hjallakirkju syngur, söngstjóri og organisti er Jón Ólafur Sigurðsson. Sungnir verða sálmarnir: nr. 404 – Góður engill – , við lag Ísólfs Pálssonar. Nr. 24 – Lofið Guð, ó, lýðir göfgið hann – við lag Péturs Guðjohnsens. Nr. 308 – Heyr, himna smiður – við lag Þorkels Sigurbjörnssonar. Bæn eftir þá Jakob Jóh. Smára og Þórarinn Guðmundsson, Friður sé með öllum yður eftir Friðrik Bjarnason og lokasálmurinn er nr. 534 Ég veit um himins björtu borg. Sem lokatónlist syngur kórinn lokaþáttinn úr Te Deum – Á þér Drottinn er öll vor von – eftir Jón Þórarinsson. Forspilið verður Litanei – eða Lítanía allra heilagra eftir Franz Schubert.

2. des. sunnudagur – 1. sunnudagur í aðventu
Kantötuguðsþjónusta kl. 11.00.

Við tónlistarguðsþjónustuna 1. sunnudag í aðventu er verður flutt kantatan Nú kemur heimsins hjálparráð nr. 61 eftir J. S. Bach. Texti kantötunnar fjallar um komu Frelsarans eða Konungsins og hefst með tignarlegum kórkafla í frönsku forleiksformi, síðan kemur söngles og aría fyrir tenór – Hjálpræðið er komið – Komdu Jesú til kirkju þinnar, bassi syngur síðan tónlesið – Sjá hann stendur við dyrnar og knýr á, sópranarían – Opna þig hjarta mitt – fylgir þar á eftir. Að lokum syngur kórinn síðustu línur sálmsins – Sjá morgunstjarnan blikar blíð. Félagar úr Kór Hjallakirkju syngja, einsöngvarar eru Kristín R. Sigurðardótti, sópran, Árni J. Eggertsson, tenór og Gunnar Jónsson bassi, Julian Hewlett leikur með á orgelið. Einnig verður fluttur kantötuþátturinn Slá þú hjartans hörpu strengi eftir Bach ásamt fleiri fallegum aðventusálmum. Prestur er séra Íris Kristjánsdóttir og organisti og söngstjóri Jón Ólafur Sigurðsson.

9. des. sunnudagur – 2. sunnudagur í aðventu
Aðventutónleikar kl. 20.00

Kór Hjallakirkju í Kópavogi heldur sína árlegu aðventu- og jólatónleika í Hjallakirkju í Kópavogi sunnudaginn 9. desember kl. 20.00. Á efnisskránni eru enskir jólasöngvar þar sem skiptast á kórsöngur, einsöngur og almennur söngur. Þekktasti jólasálmur í heimi Blíða nótt eða Stille Nacht, Quem pastores laudavere sem er latneskur jólasöngur frá 14. öld í raddsetningu eftir John Rutter og eftir hann syngjum við Vögguvísu á jólum í þýðingu séra Sigfinns Þorleifssonar, Söngur um vitringana þrjá eftir Peter Cornelius, Á þeim langa vetri eftir Gustav Holst, Ó, Jesúbarn blítt í útsetningu eftir J.S. Bach, Arían Rejoice úr Messíasi eftir Händel, Maríukvæði þeirra Atla Heimis og Halldórs Kiljan Laxness, Kveikt er ljós við ljós eftir Sigfús Halldórsson og Stefán frá Hvítadal og fleira. Séra Sigfús Kristjánsson les ljóðið Jól eftir Stefán frá Hvítadal og séra íris Kristjánsdóttir flytur ritningarorð og bæn í lokin og svo syngjum við öll saman sænska jólasálminn Nú ljóma aftur ljósin skær. Einsöngvarar eru Kristín R. Sigurðardóttir sópran, Ingunn Sigurðardóttir sópran og Gunnar Jónsson bassi. Ennfremur stíga á stokk sem einsöngvarar Elva Rakel Jónsdóttir sópran, Katrín Valgerður Karlsdóttir sópran, Kristín Halla Hannesdóttir sópran, Þóra Ingibjörg Sigurjónsdóttir sópran, Árni Jón Eggertsson tenór, Kjartan Brjánn Pétursson tenór og Bergvin Magnús Þórðarson baritón. Á orgelið leikur Julian Edward Issacs. Stjórnandi er Jón Ólafur Sigurðsson. Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir. Boðið verður upp á heitt kakó og piparkökur eftir tónleikana. Einnig verður hægt að fá geisladisk kórsins keyptann en á honum er eingöngu íslensk kirkjutónlist. Sjá nánar um diskinn hér til hliðar undir Kór Hjallakirkju.

16. des. sunnudagur – 3. sunnudagur í aðventu
Lofgjörðarguðsþjónusta kl. 11.00

Séra Íris Kristjánsdóttir þjónar og Þorvaldur Halldórsson sér um tónlistina.

Sunnudagurinn 23. desember 2007 kl. 11.00
Jólasöngvar – við syngjum inn jólin

Þetta er góð stund til að slappa af og komst í hið rétta jólaskap. Fluttir verða klassískir jólasöngvar og jólasálmar. Kór Hjallakirkju undir stjórn Jóns Ólafs Sigurðssonar og Garðakórinn undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar sjá um kórsönginn ýmist saman eða hvor fyrir sig. Má þar nefna Þá nýfæddur Jesú í jötunni lá, Á dimmri nóttu bárust boð sem er enskt jólalag við texta séra Hjálmars Jónssonar, Heyrið hve klukkurnar klingja, þýskt jólalag í raddsetningu Guðmundar Gilssonar. Vögguvísu á jólum eftir John Rutter textinn eftir séra Sigfinn Þorleifsson, Forðum í bænum Betlehem við texta Hauks Ágústssonar í raddsetningu Jóhanns Baldvinssonar, Frá ljósanna hásal, Blíða nótt sem er íslensk þýðing á Stille Nacht þar sem hvert vers hefur sína raddsetningu, Heilaga nótt eftir Reichardt við þýðingu Sigurðar Björnssonar. Nóttin var sú ágæt ein. Auk þess syngja allir viðstaddir saman Við kveikjum einu kerti á, Bjart er yfir Betlehem og Er jólaljósin ljóma og kanski eitthvað fleira. Upplestur á jólakvæðum og ritningarlestrar verða svo inn á milli tónlistaratriðanna. Lestrinum stjórnar séra Sigfús Kristjánsson og fær til liðs við sig nokkra góða lesara. Það kostar að sjálfsögðu ekkert inn og allir hjartanlega velkomnir.

24. des. Aðfangadagskvöld
Aftansöngur kl. 18.00

Prestar Hjallakirkju þjóna. Kór Hjallakirkju syngur og flytur m.a. jólakantötuna Aðfangadagskvöld eftir Sigvalda Kaldalóns. Erla Björg Káradóttir sópran syngur einsöng og Steinar Matthías Kristinsson leikur á trompet. Organisti: Jón Ól. Sigurðsson.

Sungnir hátíðasöngvar sr. Bjarna Þorsteinssonar.

25. des. Jóladagur
Útvarpsguðsþjónusta kl. 11.00

Séra Íris Kristjánsdóttir þjónar. Kór Hjallakirkju syngur, Einsöngvari: Kristín R. Sigurðardóttir. Organisti: Jón Ólafur Sigurðsson.

Sungnir hátíðasöngvar sr. Bjarna Þorsteinssonar.

26. des. Annar jóladagur
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.00

Séra Sigfús Kristjánsson þjónar. Félagar úr Kór Hjallakirkju syngja. Barnakór úr Hjallaskóla syngur undir stjórn Guðrúnar Magnúsdóttur. Organisti Jón Ól. Sigurðsson.

31. des. Gamlársdagur
Aftansöngur kl. 18.00

Séra Íris Kristjánsdóttir þjónar. Kór Hjallakirkju syngur. Einsöngvari: Gunnar Jónsson.
Organisti: Jón Ólafur Sgurðsson.
Sungnir hátíðasöngvar og Lítanía sr. Bjarna Þorsteinssonar.