Home > Hjallakirkja > Glatt á Hjalla, safnaðarblað

Glatt á Hjalla, safnaðarblað

Glatt á Hjalla er safnaðarblað Hjallasóknar og var gefið út í 18 ár. Blaðið kom út þrisvar sinnum á ári, fyrir páska, í byrjun september og fyrir aðventu. Í hverju blaði var að finna fréttir af starfinu og kynningu á því sem fram fór í kirkjunni. Allt frá því að heimasíða var tekin í notkun var hlutverk safnaðarblaðsins fyrst og fremst að ná til þeirra sem ekki nota netið að jafnaði, því allar þær upplýsingar sem blaðið veitir er að finna á síðunni. Í ársbyrjun 2011 var tekin sú ákvörðun að hætta að gefa blaðið út til að spara söfnuðinum fjárútlát. Við vonum að fólk nýti sér þess í stað heimasíðuna sem veitir allar upplýsingar um safnaðarstarfið.

Hér fyrir neðan er að finna safnaðarblöð áranna 2008-2010 í pdf skjali og getur hver og einn hlaðið blaðinu niður til lestrar.