Miðvikudaginn 9. maí kl. 18 verður haldinn kynningarfundur um fermingarstörf í Hjallakirkju veturinn 2012-2013. Á fundinn eru sérstaklega boðin velkomin væntanleg fermingarbörn fædd 1999 og foreldrar þeirra. Farið verður yfir tilhögun fermingarfræðslunnar á næsta vetri en hún hefst með námskeiði í ágúst fyrir þau fermingarbörn sem það kjósa. Einnig er hægt að hefja fræðsluna í september. Nú þegar er hægt að skrá sig í fræðsluna hér á síðunni, undir Fermingarstarf / Skráning.