Námskeið hefst í Hjallakirkju 20. október
Krílasálmar er tónlistarnámskeið í kirkjunni fyrir börn 3ja – 18 mánaða og foreldra þeirra. Markmið námskeiðsins er að vekja sönggleði og gefa foreldrum tækifæri til að tengjast börnum sínum í gegnum söng, leik og tónlist. Sungnir eru sálmar og lög kirkjunnar, þekkt barnalög, íslensk þjóðlög og kvæði. Leitast er við að búa til notalegar stundir þar sem við syngjum, vöggum börnunum, dönsum, hlustum á tónlist, leikum okkur og njótum samverunnar.
Miðvikudaginn 21. október 2015 hefst sjö vikna námskeið í Hjallakirkju í umsjá Guðnýjar Einarsdóttur organista. Námskeiðið verður á miðvikudögum kl. 10:30 og kostar 3500 kr.
Nauðsynlegt er að skrá sig til þátttöku, en hámarksfjöldi er 10 börn á námskeið. Skráning á gudny@hjallakirkja.is. Frekari upplýsingar má finna á hjallakirkja.is/starfid/krilasalmar