Miðvikudaginn 11. mai kl. 18  verður kynningarfundur í Hjallakirkju vegna fermingarársins sem hefst í ágúst 2016 og lýkur með fermingum 2017.

Bréf var sent aðstandendum barna á fermingaraldri sem búa í sókninni en fundurinn er opinn öllum sem vilja kynna sér fermingarstarf Hjallakirkju, óháð búsetu.

Meðfylgjandi er bréfið sem sent var út:

Til foreldra barna í Hjallasókn sem fædd eru árið 2003

Kynning fyrir fermingarbörn og foreldra þeirra á fermingarstörfum næsta vetur,

miðvikudaginn 11. maí 2015 kl. 18-18.45 í Hjallakirkju.

Næstkomandi miðvikudag, 11. maí kl. 18, verður fundur í Hjallakirkju um fermingarstörfin næsta haust og er hann opin öllum ungmennum sem vilja fermast í Hjallakirkju og foreldrum þeirra. Boðað er til fundarins að vori því að fræðslan hefst strax í ágúst, líkt og undanfarin ár, og því mikilvægt að kynning fermingarstarfanna fari fram áður en að sumarfríum kemur.

Um er að ræða viku námskeið í ágústmánuði fyrir þau fermingarbörn sem það kjósa. Með þátttöku sinni á því námskeiði minnkar hlutfallslega sú vinna sem ungmennin þurfa að inna að hendi yfir veturinn. Þetta ætti að koma sér vel fyrir unglinga sem hafa þétt setna vetrardagskrá, s.s. íþróttaiðkun, tónlistarnám eða annað þess háttar. Þau börn sem ekki vilja né hafa tök á að taka þátt í umræddu námskeiði í ágústmánuði munu hefja fræðsluna með námskeiði nokkra daga eftir skóla í september. Tekið skal fram að enginn munur verður á vinnu fermingarbarnanna hvort sem þau taka þátt í ágústnámskeiðinu eða byrja fræðsluna í september.

Á fundinum munum við ræða fermingarstörfin almennt, helstu tímasetningar, námsefni og fleira. Opnað hefur verið fyrir skráningu í fermingarfræðslu á vef kirkjunnar, www.hjallakirkja.is/fermingarstarf. Einnig er hægt að skrá börn á opnunartíma Hjallakirkju í maí og júnímánuði. Á vefnum má einnig finna tímasetningar ágústsnámskeiðs og fermingardaga vorsins.

Þá minnum við á, að við innritun er beðið um ýmsar upplýsingar, s.s. kennitölu fermingarbarns, skírnardag, nöfn foreldra, atvinnu, heima- og vinnusíma, netfang. Einnig er mögulegt að skrá aðra aðstandendur sem þið óskið að fái upplýsingar frá okkur, svo sem stjúpforeldra.

Með kærri kveðju og von um góðar undirtektir,

prestar og starfsfólk Hjallakirkju.