Þriðjudaginn 11. október 2016 hefst átta vikna Krílasálma – námskeið í Hjallakirkju.
Krílasálmar er tónlistarnámskeið í kirkjunni fyrir börn 3ja – 18 mánaða og foreldra þeirra. Markmið námskeiðsins er að vekja sönggleði og gefa foreldrum tækifæri til að tengjast börnum sínum í gegnum söng, leik og tónlist. Sungnir eru sálmar og lög kirkjunnar, þekkt barnalög, íslensk þjóðlög og kvæði. Leitast er við að búa til notalegar stundir þar sem við syngjum, vöggum börnunum, dönsum, hlustum á tónlist, leikum okkur og njótum samverunnar.
Námskeiðið verður á þriðjudögum kl. 13:15 og kostar aðeins 4000 kr. Nauðsynlegt er að skrá sig til þátttöku, en hámarksfjöldi er 10 börn á námskeið. Best er að senda tölvupóst á gudny@hjallakirkja.is.