Aðfangadagur
Kl. 16:00 – Jólastund barnanna
Dásamleg jólastund með jólasögu og söng.
Kl. 18:00 – Aftansöngur
Flutt verður hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar.
Kór Hjallakirkju syngur og leiðir almennan söng. Hanna Þóra Guðbrandsdóttir, sópran, syngur einsöng. Jón Hafsteinn Guðmundsson leikur á trompet.
Jóladagur
Kl. 14:00 – Jólasöngvar Hjallakirkju
Falleg stund, þar sem skiptast á jólasálmar sem kór kirkjunnar leiðir og ritningarlestrar.
Gamlársdagur
Kl. 18:00 – Aftansöngur
Flutt verður hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar. Kór Hjallakirkju syngur og leiðir almennan söng. Jón Hafsteinn Guðmundsson leikur á trompet. Flutt verður Tokkata og fúga í d-moll eftir J. S. Bach.