Sunnudaginn 25. mars eru tvær fermingarguðsþjónustur í Hjallakirkju. Sú fyrri kl. 10.30 og sú síðari kl. 13.30. Nöfn fermingarbarna þessa dags má sjá inn með því að fara inn á fermingar hér á heimasíðunni. Kór Hjallakirkju syngur undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur organista. Prestar eru sr. Sunna Dóra Möller og sr. Karen Lind Ólafsdóttir.