Til foreldra barna í Hjallasókn sem fædd eru árið 2005

 Kynning fyrir fermingarbörn og foreldra þeirra á fermingarstörfum næsta vetur, miðvikudaginn 9. maí 2018 kl. 18-18.45 í Hjallakirkju.

Miðvikudaginn, 9. maí kl. 18, verður fundur í Hjallakirkju um fermingarstörfin næsta haust og er hann opin öllum ungmennum sem vilja fermast í Hjallakirkju og foreldrum þeirra. Boðað er til fundarins að vori því að fræðslan hefst strax í ágúst, líkt og undanfarin ár, og því mikilvægt að kynning fermingarstarfanna fari fram áður en að sumarfríum kemur.

Um er að ræða viku námskeið í ágústmánuði 13.-17. ágúst, fyrir þau fermingarbörn sem það kjósa. Með þátttöku sinni á því námskeiði minnkar hlutfallslega sú vinna sem ungmennin þurfa að inna að hendi yfir veturinn. Þetta ætti að koma sér vel fyrir unglinga sem hafa þétt setna vetrardagskrá, s.s. íþróttaiðkun, tónlistarnám eða annað þess háttar. Þau börn sem ekki vilja né hafa tök á að taka þátt í umræddu námskeiði í ágústmánuði munu hefja fræðsluna með námskeiði nokkra daga eftir skóla í september. Tekið skal fram að enginn munur verður á vinnu fermingarbarnanna hvort sem þau taka þátt í ágústnámskeiðinu eða byrja fræðsluna í september.

Á fundinum munum við ræða fermingarstörfin almennt, helstu tímasetningar, námsefni og fleira. Opnað verður fyrir skráningu í fermingarfræðsluna miðvikudaginn 4. apríl á vef kirkjunnar hjallakirkja.is/fermingar. Fermingardagar vorsins 2019 eru annars vegar 7. apríl kl. 10.30 og 13.30 og 14. apríl kl. 10.30 og 13.30.

Þá minnum við á, að við innritun er beðið um ýmsar upplýsingar, s.s. kennitölu fermingarbarns, skírnardag, nöfn foreldra, atvinnu, heima- og vinnusíma, netfang. Einnig er mögulegt að skrá aðra aðstandendur sem þið óskið að fái upplýsingar frá okkur, svo sem stjúpforeldra. Við skráningu greiðast 10.146,- kr í staðfestingargjald ásamt því að í boði verður að greiða fræðslugjald vetrarins að fullu sem er 19.146 kr ásamt 2000 króna kirtilleigugjaldi. Heildarkostnaður við fræðslu vetrarins er því 21.146kr.

Með kærri kveðju og von um góðar undirtektir,

Prestar og starfsfólk Hjallakirkju