Skírnarguðsþjónusta verður í Hjallakirkju sunnudaginn 29. júlí kl. 11.00. Guðsþjónustan er helg stund þar sem ungt barn verður borið til skírnar og hún því tileinkuð þessum fallegu og helgu tímamótum í lífi foreldranna þar sem þau færa barn sitt til skírnar í bæn og þökk fyrir lífð sem Guð gefur okkur.
Prestur er sr. Sunna Dóra Möller. Organisti er Guðný Einarsdóttir.
Verið velkomin.