Messa er sunnudaginn 23. september kl. 11.00. Kór Hjallakirkju leiðir söng undir stjórn Láru Bryndísar Eggertsdóttur organista. Prestur er sr. Sunna Dóra Möller.

Verið velkomin!

Sunnudagaskóli er á sama tíma í safnaðarheimilinu og það eru þau Markús og Heiðbjört sem leiða hann. Góðar og uppbyggilegar stundir á sunnudagsmorgnum fyrir allar fjölskyldur.