Fimmtudaginn 13. desember er jólastund félagsstarfs fullorðinna í Hjallakirkju. Boðið verður upp á smørrebrød og jólaöl. Bryndís Björgvinsdóttir les úr nýrri bók hennar og Svölu Ragnarsdóttur, Krossgötur. Það er bókaútgáfan Bjartur sem gefur bókina út og um hana er sagt í kynningartexta: „Íslensk þjóðtrú geymir fjölmargar frásagnir af ákveðnum siðum sem menn skulu viðhafa í umgengni sinni við álfa og huldufólk. Þessir siðir hafa haldist merkilega óbreyttir í gegnum aldirnar – að minnsta kosti sá hluti þeirra sem snýr að skilyrðislausri virðingu fyrir bústöðum álfa og huldufólks. Nú sem fyrr hafa slík bannhelg svæði áhrif á framkvæmdir manna, allt frá vegalagningu til byggingu sólpalla.“
Í þessari bók eru fimmtíu og fjórir álfasteinar, huldufólksklettar, dvergasteinar og aðrir bannhelgir staðir um allt land, teknir til skoðunar í máli og myndum, um leið og hinn forni átrúnaður á nábýli mannfólks og yfirnáttúrulegra vætta er settur í samhengi við sögu, listir og fræði. Krossgötur er einstök lesning fyrir alla þá sem hafa áhuga á einni þekktustu þjóðtrú Íslendinga og þeim sýnilegu áhrifum sem hún hefur í borg og sveit.
Þetta verður án efa fróðlegt og áhugavert og hvetjum við fólk til að fjölmenna í Hjallakirkju og eiga með okkur góða jólastund.
Allir velkomnir. Áhugasamir skrái sig á netfanginu gudrun@hjallakirkja.is.