Sunnudaginn 24. febrúar fögnum við konudegi í Hjallakirkju í messu kl. 11.00.
Kvennaraddir úr Kór Hjallakirkju flytja „kvenlega“ tónlist undir stjórn Láru Bryndísar Eggertsdóttur, m.a. úr kvikmyndinni Sister Act.
Boðið verður upp á sérlegt konudagskaffi á eftir.
Prestur er sr. Sunna Dóra Möller.