Sameiginlegt félagsstarf eldri borgara Digranes- og Hjallakirkju.

Þriðjudagur 14. mars kl. 11-14.15 í Digraneskirkju.

Dagskráin er eftirfarandi: Leikfimi, hádegisverður, helgistund og fræðsla.

Alfreð og Sísa leiða helgistund. Að lokinni stund í kirkjunni spjallar sr. Sigurjón Árni við hópinn og spilar á saxafóninn.

Dagskránni lýkur á kaffi, góðum molum og notalegri samveru.

Fimmtudagur 16. mars kl. 11-12.15 í Digraneskirkju.

Dagskráin er eftirfarandi: Leikfimi og bænastund.