Sameiginlegt félagsstarf eldri borgara í Digranes- og Hjallakirkju.
Þriðjudagur 21. mars kl. 11-14.15 í Digraneskirkju.
Dagskráin er eftirfarandi: Leikfimi, hádegisverður, helgistund og bingó.
Alfreð og Sísa leiða helgistund. Að lokinni stund í kirkjunni kemur Þórey Dögg Jónsdóttir djákni í heimsókn og fer með okkur í bingó og leiki.
Dagskránni lýkur á kaffi, góðum molum og notalegri samveru.
Fimmtudagur 23. mars kl. 11-12.15 í Digraneskirkju.
Dagskráin er eftirfarandi: Leikfimi og bænastund.