Það sem gott er að fermingarbörnin kynni sér:
Gullna reglan
Allt sem þér viljið að aðrir menn geri yður, það skuluð þér og þeim gera. Matt. 7.12
Litla Biblían
Því svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf einkason sinn til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki heldur hafi eilíft líf. Jóh. 3.16
Tvöfalda kærleiksboðorðið
Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni, öllum mætti þínum og öllum huga þínum og náunga þinn eins og sjálfan þig. Lúk. 10.27
Signing
Í nafni Guðs + Föður og Sonar og Heilags anda. Amen.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum. Helgist þitt nafn, til komi þitt ríki, verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni. Gef oss í dag vort daglegt brauð. Og fyrirgef oss vorar skuldir, svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum. Eigi leið þú oss í freistni, heldur frelsa oss frá illu. Því að þitt er ríkið, mátturinn og dýrðin að eilífu. Amen. Matt. 6.9-13
Skírnarskipunin
Allt vald er mér gefið á himni og jörðu. Farið því og gjörið allar þjóðir að lærisveinum, skírið þá í nafni föður, sonar og heilags anda, og kennið þeim að halda allt það, sem ég hef boðið yður. Og sjá, ég er með yður alla daga, allt til enda veraldar. Matt. 28.18-20
Trúarjátningin
Ég trúi á Guð, föður almáttugan, skapara himins og jarðar.
Ég trúi á Jesú Krist, hans einkason, Drottin vorn, sem getinn er af heilögum anda, fæddur af Maríu mey, píndur á dögum Pontíusar Pílatusar, krossfestur, dáinn og grafinn, steig niður til heljar, reis á þriðja degi aftur upp frá dauðum, steig upp til himna, situr við hægri hönd Guðs föður almáttugs og mun þaðan koma að dæma lifendur og dauða.
Ég trúi á heilagan anda, heilaga almenna kirkju, samfélag heilagra, fyrirgefningu syndanna, upprisu mannsins og eilíft líf. Amen.
Boðorðin 10
- Ég er Drottinn, Guð þinn. Þú skalt ekki aðra Guði hafa.
- Þú skalt ekki leggja nafn Drottins Guðs þíns við hégóma.
- Minnstu þess að halda hvíldardaginn heilagan.
- Heiðra skaltu föður þinn og móður.
- Þú skalt ekki mann deyða.
- Þú skalt ekki drýgja hór.
- Þú skalt ekki stela.
- Þú skalt ekki bera ljúgvitni gegn náunga þínum.
- Þú skalt ekki girnast hús náunga þíns.
- Þú skalt ekki girnast konu náunga þíns, þjón, þernu, uxa, asna né nokkuð það sem náungi þinn á. 2.Mós. 20.1-17